07.01.2021

Lífeyris­auki Arion banka sigldi far­sæl­lega í gegnum ólgu­sjó ársins 2020

Þrátt fyrir mikla óvissu og sveiflur á fjármála- og verðbréfamörkuðum var viðburðaríka árið 2020 farsælt fyrir Lífeyrisauka – viðbótarlífeyrissparnað Arion banka. Allar sjö leiðir sjóðsins skiluðu jákvæðri raunávöxtun.

Nafnávöxtun fjárfestingarleiða Lífeyrisauka á árinu 2020 var á bilinu 4,2% til 19,8% sem samsvarar 0,7% til 15,7% raunávöxtunar. Lífeyrisauki er stærsti og fjölmennasti séreignarsjóður á Íslandi sem tekur eingöngu við viðbótarlífeyrissparnaði og eru fjárfestingarleiðir sjóðsins misáhættusamar. Fjárfestingarleiðin Lífeyrisauki Erlend verðbréf skilaði hæstu raunávöxtun sjóðsins á árinu, eða alls 15,7%. Fjárfestingarleiðin er ekki hluti af ævilínu (sjálfvirkum flutningum eftir aldri) en er ætluð til að mæta þörfum þeirra sem vilja fjárfesta í blönduðu eignasafni erlendra verðbréfa. Lífeyrisauki 1, fyrsta þrep ævilínu og sú leið sem inniheldur hæst hlutfall hlutabréfa þeirra fimm leiða sem mynda ævilínu, skilaði næsthæstu raunávöxtun fjárfestingarleiða á liðnu ári, eða alls 12,8%.

Þrátt fyrir mikla óvissu og glundroða á erlendum mörkuðum, skilaði eignaflokkurinn Erlend hlutabréf hæstri ávöxtun á árinu 2020. Heimsvísitala hlutabréfa hækkaði um 14,1% mælt í Bandaríkjadal eða alls 20,3% í íslenskum krónum, sem skýrist af veikingu krónunnar á móti helstu viðskiptamyntum.

Ávöxtun á innlendum hlutabréfamarkaði náði sér á strik eftir mestu lækkun frá efnahagshruni í marsmánuði og hækkaði Úrvalsvísitala hlutabréfa um 20,5% á árinu.

Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru í sögulegu lágmarki í árslok, en þeir fóru úr 3,0% í byrjun árs í 0,75% við lok árs. Lækkun stýrivaxta leiddi til lækkunar á ávöxtunarkröfu innlendra skuldabréfa, sem aftur skilaði sér í góðri ávöxtun á eignaflokknum. Ávöxtun verðtryggðra ríkisskuldabréfa var á bilinu 4,9% til 9,4% og ávöxtun óverðtryggðra frá 5,4% til 7,4%.

Í breyttu efnahagsumhverfi, þar sem raunvextir eru alla jafna neikvæðir og stýrivextir í sögulegu lágmarki er vert að benda á mikilvægi þess að sjóðfélagar meti hvaða leið henti hverjum og einum best, út frá aldri og væntingum til ávöxtunar. Sjóðfélagar hafa ávallt val um ávöxtunarleið og eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa í Lífeyrisþjónustu Arion banka sem svara spurningum sem kunna vakna um flutning á inneign milli leiða.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira