29.05.2026

„Mikið keppn­is­skap í fjöl­skyldunni“

Í mars síðastliðnum hélt Arion banki hina árlegu fjárfestingarkeppnina bankans í samstarfi við Dyngju. Að þessu sinni fór keppnin fram undir formerkjum „Konur fjárfestum“ langtímaátaksins og var því einungis ætluð konum.

Skemmst er frá því að segja að slegið var þátttökumet. Áhuginn er greinilega gríðarlegur en samtals tóku 1720 konur þátt í fjárfestingarkeppninni. Allar byrjuðu þær með 10 milljónir króna og fengu mánuð til að ávaxta þá peninga með kaupum á hlutabréfum og í sjóðum.

Markaðurinn var ekki auðveldur á þessu tímabili og reyndist mörgum róðurinn ansi þungur. Einn keppandi bar höfuð og herðar yfir aðra og var það Alexandra Chernyshova með +25,38% ávöxtun. Í öðru sæti var Máney Alda Rúnarsdóttir með +8,67% ávöxtun og í því þriðja var Ingibjörg Leópoldsdóttir með +7,86% ávöxtun. Á annað hundrað konur skiluðu hagnaði af fjárfestingum sínum og stóðu sig því með mikilli prýði.

En eins og tölurnar sýna var Alexandra langefst. Við plötuðum hana í örstutt spjall í tilefni þessa framúrskarandi árangurs.

Fjárfestingarnar ræddar við eldhúsborðið

Alexandra, sem er upprunalega frá Kiev í Úkraínu, er greinilega ýmsum hæfileikum gædd. Ekki aðeins er hún lærður óperusöngvari í Úkraínu, á Ítalíu og í Þýskalandi, heldur einnig menntaður kennari og enn fremur með háskólagráður í spænsku, bókmenntum og ensku. Þá er hún með mastersgráðu frá Listaháskólanum hér á landi, í sköpun og miðlun, og sömuleiðis með próf í menningarstjórnun frá Bifröst. Alexöndru finnst sýnilega gaman að læra og virðist vera fljót að tileinka sér nýja þekkingu og færni. Það ætti því ekki að koma neinum á óvart að heimur fjárfestinga, þar sem hún er nýgræðingur, ljúkist hratt upp fyrir henni.

Í því samhengi er gaman að geta þess að Alexander Logi Chernyshov Jónsson, sonur Alexöndru og nemi í fjármálaverkfræði við Háskóla Reykjavíkur, bar sigur úr býtum í Fjárfestingarkeppni háskólanema í fyrra. Annar sonur hennar og yngri bróðir Alexanders, Nikolai, lenti sömuleiðis í fjórða sæti í fjárfestingarkeppni framhaldsskólanema 2025. Það er því augljóst að áhuginn er til staðar í fjölskyldunni og næsta víst að þetta umræðuefni beri oft á góma við eldhúsborðið.

„Rétt er það,“ segir Alexandra og brosir. „Og svo er mikið keppnisskap í fjölskyldunni.“

Ekki erfitt að finna góða fræðslu um fjárfestingar

Til að viða að sér upplýsingum kveðst Alexandra hafa lesið ýmsa fréttamiðla, farið oft og mikið inn á Kelduna og enn fremur gúglað fyrirtækin á markaði í bak og fyrir.

Hefðirðu fjárfest með sama hætti ef um alvöru peninga hefði verið að ræða?

„Nei, alls ekki,“ segir hún án þess að hika. „Ég er ekki áhættusækin manneskja. En þetta var góður lærdómur: að prófa að taka stóra sénsa.“

Finnst þér fræðsluefni um fjárfestingar vera aðgengilegt þeim konum sem hafa áhuga á því að fræðast meira um þennan heim?

„Já, ef þú leggur þig eftir því að fræðast um fjárfestingar er margs konar efni í boði. Það er svo margt aðgengilegt á internetinu nú til dags. Þú getur fundið upplýsingar um nánast allt sem þér dettur í hug.“

Alexandra bætir því við að hún hafi sótt Konur fjárfestum viðburði og kveður þá hafa reynst sér bæði hvatning og innblástur, auk þess sem hún hafi þar lært eitt og annað um fjárfestingarheiminn.

Við óskum Alexöndru hjartanlega til hamingju með árangurinn og óskum henni alls hins besta í framtíðinni.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira