06.11.2019

Nú get­ur þú borg­að með Garmin og Fit­bit

Viðskiptavinir Arion banka, sem eru með Visa debet- eða kreditkort, geta frá og með deginum í dag notað Garmin Pay og Fitbit Pay til að greiða fyrir vörur og þjónustu með úrinu sínu.

Þessar greiðslulausnir er mjög einfaldar og öruggar í notkun. Viðskiptavinir, sem nýta sér kosti þessara lausna, fá áfram öll þau fríðindi og tilboð sem fylgja kredit- og debetkortum Arion banka og enginn viðbótarkostnaður fylgir því að greiða með Garmin Pay eða Fitbit Pay.

Þegar Garmin Pay og Fitbit Pay er notað til að greiða fyrir vörur og þjónustu í verslunum með snjallúrum þá fer greiðslan fram með einföldum og snertilausum hætti.

Garmin Pay og Fitbit Pay er auðveld í uppsetningu og það er einfalt að tengja greiðslukort við þjónustuna í gegnum app viðkomandi framleiðanda.

Öryggi og persónuvernd eru í fyrirrúmi. Þegar greitt er með Garmin Pay og Fitbit Pay þarf notandi að auðkenna sig með PIN-númeri áður en greiðsla er framkvæmd. Þegar kredit- eða debetkort er notað með Garmin Pay og Fitbit Pay, eru kortanúmer hvorki geymd í tækinu né á vefþjónum. Þess í stað er sérstökum sýndarnúmerum úthlutað sem geymd eru með öruggum hætti í því tæki sem greitt er með hverju sinni.

Nánar um uppsetningu Garmin Pay og Fitbit Pay

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira