17.01.2017

Ný fjármögnunar­leið fyrir lít­il og með­al­stór fyrir­tæki kynnt á fundi Sam­taka sprota­fyrir­tækja

Arion banki í samstarfi við European Investment Fund, EIF, býður nú fjármögnun fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem hyggjast innleiða nýjungar í sinni starfsemi hvort sem um er að ræða innleiðingu á nýjum vörum, ferlum eða þjónustu.

Tilgangur samstarfsins er að veita fyrirtækjum aðgang að fjármagni á lægri vöxtum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og með því styðja við nýsköpun, örva atvinnulíf, rannsóknir og þróun. Nánari upplýsingar um fjármögnunina má finna hér.

Einar Gunnar Guðmundsson, forsvarsmaður nýsköpunarmála hjá Arion banka, og Jónas Páll Jakobsson, frá viðskiptabankasviði, kynntu nýverið þessa nýju fjármögnunarleið á fundi Samtaka sprotafyrirtækja. Um 60 manns voru á fundinum og sköpuðust góðar umræður í kjölfar kynningarinnar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira