27.08.2021

Ný lög um markaði með fjármála­gerninga - þetta þarft þú að gera

Frá og með 1. september taka gildi ný lög um markaði fyrir fjármálagerninga (lög nr. 115/2021). Hinu nýja regluverki er meðal annars ætlað að auka gagnsæi í viðskiptum með fjármálagerninga og skerpa á fjárfestavernd, nánari upplýsingar má nálgast hér.

Til þess að tryggja að þú getir haldið áfram að stunda verðbréfaviðskipti í kjölfar gildistöku nýrra laga um markaði fyrir fjármálagerninga þarft þú að svara nokkrum spurningum um þekkingu þína og reynslu af viðskiptum með fjármálagerninga ásamt því að undirrita nýjan samning um verðbréfaþjónustu og gangast undir uppfærða almenna markaðsskilmála. Þetta getur þú gert með einföldum hætti með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Mat á þekkingu og reynslu

Ef þú ert ekki nú þegar í verðbréfaviðskiptum eða með vörslureikning hjá Arion banka þá er auðvelt að stofna til verðbréfaviðskipta með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Stofna vörslusafn

Skylda til auðkenningar með LEI

Eftir 1. september munu lögaðilar ekki geta átt viðskipti með hlutabréf eða skuldabréf skráð á skipulegan markað eða kauphallarsjóði, nema auðkenna sig með LEI fyrir viðskiptin. Nánari upplýsingar um LEI auðkenni, öflun þeirra og útgefendur finnur þú hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira