01.02.2018

Ný og þægi­legri leið til fjármögnun­ar bíla­kaupa

Arion banki hefur kynnt til sögunnar nýja tegund fjármögnunar til bílakaupa. Um er að ræða enn þægilegri leið til bílakaupa og fjármögnunar en áður hefur þekkst.

Umsóknarferlið, sem er að fullu stafrænt og pappírslaust, gengur út á að umsækjandi noti rafræn skilríki til auðkenningar og undirritunar. Þegar tilboð í ökutæki hefur verið samþykkt sendir bílasali boð í síma kaupanda sem þar með getur samþykkt og undirritað lánasamning með rafrænum skilríkjum. Ef þörf er á greiðslumati er það innbyggt í umsóknarkerfið sem gerir mögulegt að ljúka matinu gjaldfrjálst á aðeins um þremur mínútum. Með tilkomu þessarar nýjungar getur kaupandinn t.d. verið staddur heima hjá sér á meðan gengið er frá fjármögnun sem sparar bæði tíma og ferðalög.

Sævar Bjarnason, forstöðumaður bíla- og tækjafjármögnunar Arion banka:

„Það hefur lengi verið markmið Arion banka að finna leið til að einfalda aðgengi viðskiptavina að bílafjármögnun hjá samstarfsaðilum bankans, sem eru bílaumboð og bílasalar notaðra bíla. Við teljum okkur vera búin að finna þá leið með þessari tegund rafrænna bílasamninga og erum mjög ánægð með útkomuna.“

Veruleg þjónustuaukning er fólgin í hinni nýju lausn Arion banka. Með tilkomu hennar er til dæmis opið fyrir umsóknir um bílalán alla daga vikunnar en áður var hvorki hægt að fá umsóknir um fjármögnun til bílakaupa samþykktar eftir klukkan 16 á virkum dögum né um helgar.

Þeir sem eru í bílahugleiðingum geta skoðað hvaða svigrúm þeir hafa og fjármögnunarmöguleika sína með reiknivél á vefsíðu Arion banka. Nýja kerfið nýtist jafnt viðskiptavinum Arion banka og þeim sem ekki hafa verið í viðskiptum við bankann áður.

Bílasamningarnir eru hluti af þróun Arion banka á stafrænum lausnum með það að markmiði að veita þægilegri bankaþjónustu. Að undanförnu hefur bankinn kynnt fjölda nýrra stafrænna þjónustuleiða fyrir einstaklinga og fyrirtæki, og enn fleiri lausnir eru væntanlegar á næstunni.

Nánari upplýsingar um bílafjármögnun Arion banka

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira