20.02.2019

Nýtt og full­komn­ara Arion banka app kynnt í dag – nýj­ung á banka­markaði og op­ið öll­um

Arion banki kynnir í dag nýja útgáfu af Arion banka appinu en um er að ræða stærstu uppfærslu appsins frá upphafi. Hámarks heimildir eru nú sýnilegar öllum notendum þannig að þeir geta með einföldum hætti séð hversu háa fyrirgreiðslu þeir geta fengið hjá bankanum í sjálfsafgreiðslu. Þetta er algjör nýjung á íslenskum bankamarkaði.

Allir, bæði viðskiptavinir og aðrir, geta sótt appið og nýtt sér þjónustu bankans innan örfárra mínútna.

Núlán í appinu og greiðslukort sent um hæl

Sé heimild fyrir hendi er hægt að sækja um neytendalán eða Núlán, sem greitt er samstundis inn á reikning viðkomandi hjá bankanum eða hjá öðrum bönkum. Núlán eru hagstæðari neytendalán en margar þeirra nýju lánalausna sem sprottið hafa upp á síðustu árum. Meðal fjölmargra annarra nýjunga er að notendur appsins geta nú opnað veltureikning, sem opnast samstundis, sótt um og fengið afgreitt greiðslukort, kredit- og debetkort, sem sent er um hæl, og opnað sparnaðarreikninga og byrjað strax að spara.

Allir sem sækja Arion appið eru einnig gjaldgengir í Einkaklúbbinn og geta í framhaldinu sótt Einkaklúbbsappið og gengið að hundruðum tilboða víðsvegar um landið.

Þú og fyrirtækið í sama appi

Þar að auki býður ný útgáfa Arion banka appsins upp á fleiri en einn notanda fyrir þá sem einnig eru í forsvari fyrir fyrirtæki. Þeir geta nú haft yfirsýn yfir rekstur fyrirtækisins sem og eigin fjármál í einu og sama appinu.

Besta bankaappið samkvæmt könnun MMR

Viðmót appsins hefur jafnframt verið gert enn þægilegra og notendavænna. Þannig er það app sem flestir telja besta bankaappið hér á landi, samkvæmt könnun MMR frá nóvember 2018, orðið enn betra.

Arion banki hefur einsett sér að vera áfram í forystu um stafrænar lausnir á íslenskum bankamarkaði með það að markmiði að bjóða viðskiptavinum upp á þægilegri bankaþjónustu. Þess vegna vinnur bankinn hörðum höndum að enn fleiri nýjungum sem gefnar verða út á næstu mánuðum og auka þægindi notenda.

Hægt er að nálgast appið á vef bankans og í Play Store fyrir Android síma og App Store fyrir Apple síma.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira