09.11.2021

Nýtt út­lit á vott­un Visa við stað­festingu á net­færslum

Frá og með 10. nóvember verður lítilsháttar breyting á vefsíðu sem birtist þegar korthafar eru beðnir að staðfesta netkaup með staðfestingarkóða. Ferlið er að öðru leyti óbreytt.

Þegar korthafar greiða með korti fyrir netviðskipti hjá söluaðila sem krefst þess að kortið sé vottað af Visa birtist vefsíða þar sem korthafi er beðinn um að slá inn staðfestingarkóða. Staðfestingarkóðinn er sendur í smáskilaboðum í það símanúmer sem er skráð hjá handhafa kortsins.

Hér má sjá útlit vefsíðunnar eftir breytingu:

Við minnum á mikilvægi þess að staðfesta ekki færslu með öryggisnúmeri nema upphæð viðskipta og nafn söluaðila á vefsíðu og í SMS skilaboði stemmi við þau kaup sem verið er að framkvæma.

Á vef Arion banka er fræðsluefni um Vottun Visa og góð ráð fyrir netverslun.

Nánari upplýsingar á vef Valitor.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira