20.04.2020

Opn­að hef­ur ver­ið fyrir um­sóknir um fyrir­fram­greiðslu viðbótar­sparnaðar

Nú er hægt að sækja um fyrirframgreiðslu rafrænt í gegnum Mínar síður Frjálsa og Lífeyrisauka. Opið er fyrir umsóknir til og með 1. janúar 2021. Til að fá greitt 30. apríl þarf að sækja um í síðasta lagi 26. apríl. Eftir þann tíma munu greiðslur fara fram 15. hvers mánaðar og skulu nýjar umsóknir berast eigi síðar en fimm virkum dögum fyrir útgreiðsludag.

Hámarksfjárhæðin er 12 milljónir kr. fyrir skatt, þó aldrei meira en uppsöfnuð inneign sjóðfélaga þann 1. apríl, samanlagt úr sjóðum allra vörsluaðila. Um er að ræða jafnar mánaðarlegar greiðslur. Hægt er að velja fjárhæð á mánuði, hámark 800.000 kr. og fjölda mánaða, hámark 15. Greiða þarf tekjuskatt af fjárhæðinni.

Sjóðfélagar eru hvattir til að kynna sér úrræðið vel.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira