29.05.2026

Rýnt í fram­tíð fisk­eldis á glæsi­legri ráð­stefnu í Arion banka

Hringborð sjávar og eldis (Icelandic Aquaculture and Ocean Forum, eða IAOF) stóð fyrir fiskeldisráðstefnu í samstarfi við Arion banka fjórða árið í röð dagana 21. og 22. maí síðastliðinn.

Ráðstefnan fór fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og var haldin fyrir valinn hóp fjárfesta, forsvarsmenn leiðandi fyrirtækja og lykilhagsmunaaðila í greininni.

Áhrifafólk úr greininni fjölmennti

Fjöldamargt áhrifafólk úr greininni tók þátt í ráðstefnunni, meðal annars Aleks Engel, partner hjá Novo Holdings; Maarten Bijl, forstjóri Skretting, stærsta fóðurframleiðanda í heimi; Gustav Witzøe, stjórnarformaður og stofnandi SalMar, næst stærsta laxeldisfyrirtækis í heimi, og Nina Stangeland, framkvæmdastjóri hjá High Liner Foods, eins stærsta framleiðslu- og sölufyrirtækis sjávarafurða í Norður-Ameríku.

Meðal íslenskra frummælenda voru Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra, Vala Valþórsdóttir, framkvæmdastjóri Aurora Abalone, dr. Júlíus B. Kristinsson hjá Marbot og Anna Þóra Hrólfsdóttir hjá Matís.

Að þessu sinni var meðal annars rætt um spennandi möguleika í þörunga- og sæeyrnarækt, þróun og framtíð fiskeldis og þróun alþjóðlegs sjávarútvegs.

Umræður beindust sérstaklega að samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavettvangi, sjálfbærni og þeim tækifærum sem felast í áframhaldandi uppbyggingu.

Nauðsynlegt að regluverkið styðji vel við fiskeldið

Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, nefndi í opnunarerindi sínu stöðu Íslands og mikilvægi trausts regluverks.

„Sérstaða Íslands – græn orka, tært vatn og sterk staða í stofnum uppsjávartegunda – er hér traustur grunnur,“ sagði Benedikt. „En til að viðhalda og efla samkeppnishæfni okkar í fiskeldi á alþjóðlegum vettvangi þurfum við að huga vel að regluverki, skattaumhverfi og tollum.“

Benedikt benti á að fiskeldi á Íslandi hefði vaxið hratt á undanförnum árum og næmi nú um 15% af útflutningsverðmæti sjávarafurða Íslands. Samhliða auknum umsvifum hefði þörfin fyrir fjármagn aukist verulega og því gegndu fjármálafyrirtæki mikilvægu hlutverki í að styðja við frekari þróun og áframhaldandi þroska greinarinnar.

Bankinn tengir saman innlenda og erlenda fjárfesta

Arion banki hefur um árabil verið virkur þátttakandi í uppbyggingu fiskeldis á Íslandi, bæði með fjármögnun og með því að tengja saman innlenda og erlenda fjárfesta með sérþekkingu á sviðinu. Hinni árlegu ráðstefnu IAOF og bankans er ætlað að búa til vettvang til að miðla þekkingu, ræða áskoranir og skoða lausnir sem styðja við sjálfbæran vöxt greinarinnar á komandi árum.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
11. ágúst 2026

Arion banki bakhjarl Einvígisins á Nesinu

Góðgerðagolfmótið Einvígið á Nesinu fór fram á Nesvellinum í frábæru veðri á frídegi verslunarmanna. Þetta var í 30. skiptið sem mótið var haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengdu börnum.

Lesa meira
01. ágúst 2026

Tilkynning til viðskiptavina - færslur hafa verið leiðréttar

Vegna tæknilegs atviks tvöfölduðust færslur tímabundið hjá hluta viðskiptavina. Færslurnar hafa nú verið leiðréttar, en í kjölfarið kann að hafa myndast kostnaður, til dæmis vegna innistæðulausra færslna eða annarra gjalda sem rekja má til atviksins.

Lesa meira
31. júlí 2026

Færslur birtast tvisvar á færsluyfirliti – unnið að leiðréttingu

Vegna mistaka þá birtast færslur frá gærdeginum, 30. júlí, tvisvar sinnum í færsluyfirlitum greiðslukorta og geta haft áhrif á ráðstöfunarupphæð kortanna. Unnið er að leiðréttingu í samstarfi við Rapyd.

Lesa meira