01.06.2026

Skráðu þig á morg­un­fund Arion banka um netöryggi og gervi­greind

Netógnum fjölgar ört og netskúrkar verða sífellt útsmognari. Þá flækir gervigreindin málið enn frekar bæði hvað varðar sókn og varnir í netöryggi.

Á morgunfundi Arion banka og Syndis þann 9. júní næstkomandi veita reyndir sérfræðingar innsýn í helstu áskoranir samtímans á sviði netöryggis. Hvernig má efla varnirnar? Hvað þarf að hafa í huga til að fyrirbyggja mögulega netglæpi?

Morgunfundurinn fer fram í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19, og er opinn bæði einstaklingum og fyrirtækjum - öllum þeim sem vilja fræðast um netöryggi og gervigreind.

Nauðsynlegt er að skrá sig til leiks. Það má gera hér.

Húsið opnar kl. 8:30. Fundurinn hefst 9:00 og stendur til 11:00. Boðið verður upp á létta hressingu og kaffi fyrir fundinn.

Við hlökkum til að sjá þig!

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira