09.12.2021

Stefnir – Scandi­navi­an Fund ESG fær AAA ein­kunn fyrir ábyrg­ar fjár­festingar

Fyrstur sjóða á Íslandi með hæstu einkunn

Stefnir – Scandinavian Fund ESG hefur hlotið AAA-einkunn MSCI, þá hæstu sem veitt er og er hann fyrstur íslenskra sjóða til að hljóta þessa einkunn. Sjóðurinn er þar með kominn í flokk með fremstu sjóðum í heiminum með tilliti til umhverfismála, félagslegra þátta og góðra stjórnarhátta (UFS, á ensku ESG). Í greiningu MSCI kemur fram að „Stefnir – Scandinavian Fund ESG“ mælist ofar en 94% sjóða sem MSCI veitir einkunn, en þeir eru um 34 þúsund talsins á heimsvísu.

Skammt er síðan áherslum „Stefnis - Scandinavian Fund ESG“ var breytt en síðastliðið vor var ákveðið að stýra sjóðnum samkvæmt aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga. Sjóðurinn fjárfestir í leiðandi fyrirtækjum í Skandinavíu sem standa öðrum framar í sjálfbærri verðmætasköpun. Stefnir hefur verið leiðandi í framboði á sjóðum á sviði ábyrgra fjárfestinga (UFS-sjóðum) en auk „Stefnis -Scandinavian Fund ESG“ býður Stefnir einnig upp á „Stefnir – Sjálfbær skuldabréf“ og „Stefnir – Grænaval“ í flokki ábyrgra fjárfestinga. Stefnir finnur fyrir mjög auknum áhuga, bæði fagfjárfesta og smærri eigenda í sjóðum, á ábyrgum og sjálfbærum fjárfestingarkostum.

Per Matts Henje, sjóðstjóri:

„Stefnir vill bjóða fjárfestum upp á ábyrga og fjölbreytta fjárfestingakosti í sem flestum eignaflokkum. Ítarleg upplýsingagjöf er lykilatriði til að sýna fram á þá samfélagslegu ábyrgð sem Stefnir vilja stuðla að. Með því að taka tillit til umhverfismála, félagslegra þátta og góðra stjórnarhátta við fjárfestingar teljum við okkur geta haft jákvæð áhrif á samfélag okkar, sem er bæði eigendum í sjóðum Stefnis og öðrum haghöfum til góðs.“

Um ESG Fund Rating

MSCI ESG Fund Ratings miða að því að mæla styrkleika verðbréfasjóða og kauphallarsjóða gagnvart langtímaáhættum og tækifærum sem stafa af umhverfis-, félags- og stjórnarháttum. Nánari upplýsingar um einkunnagjöf MSCI má finna hér.

Um Stefni

Hlutverk Stefnis hf. er að stýra fjármunum í eigu viðskiptavina með hagsmuni þeirra að leiðarljósi til skemmri og lengri tíma. Félagið hefur verið í fararbroddi í þróun nýrra sjóða og fjárfestingarkosta síðastliðna áratugi og er leiðandi þegar kemur að innleiðingu góðra stjórnarhátta, virks eignarhalds og UFS-málefna.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira