10.09.2026

Sumar­launa­leikur Arion skap­ar stemningu um allt land

Sumarlaunaleikur Arion hefur fest sig í sessi sem árlegur viðburður hjá okkur og felur í sér alls kyns skemmtilegheit. Í ár hvöttum við unglinga í sumarvinnu til að taka upp stutt og sniðug myndbönd undir myllumerkinu #arionsport. Viðbrögðin létu ekki á sér standa en um hundrað myndbönd voru merkt með þeim hætti á samfélagsmiðlum.  

Það var æðislegt að sjá hversu góðar viðtökur leikurinn fékk og hversu hugmyndaríkir krakkarnir voru þegar kom að því að finna upp á skemmtilegum hugmyndum og hrinda þeim í framkvæmd – allt frá einföldum og fyndnum atriðum upp í nánast alvöru kvikmyndagerð. Það er einmitt þetta sem gerir átakið svo skemmtilegt; að sjá unga fólkið blómstra og leyfa sköpunargleðinni að ráða för. 

Þetta er annað árið í röð sem við framleiðum peysur merktar Arion Sport, en í ár ákváðum við að bæta við vöruúrvalið og framleiða einnig íþróttatreyjur. Þær urðu gríðarlega vinsælar og ruku út eins og heitar lummur. 

Við hittum enn fremur nokkra hópa sem gerðu eftirminnileg myndbönd, tókum þátt í skemmtilegum leikjum með þeim og færðum þeim Arion Sport varning. Við viljum sérstaklega þakka vinnuskólunum sem tóku vel á móti okkur og gáfu okkur tækifæri til að gera eitthvað skemmtilegt með krökkunum — án þeirra hefði þetta ekki verið hægt. 

Arion banki þakkar öllum ungmennunum og vinnuskólunum sem tóku á móti okkur í sumar fyrir frábærar móttökur og skemmtilegar stundir. 

Fjármálafræðsla og sumarfjör í Reykjanesbæ 

Í maí opnuðu Arion banki og Vörður nýtt sameiginlegt útibú í Reykjanesbæ og því var sérstaklega gaman að nýta sumarið til að efla tengslin við unga fólkið á því svæði. 

Dagana 7.-9. júlí fórum við í vinnuskólann í Reykjanesbæ og buðum upp á létta og aðgengilega fjármálafræðslu. Þar var meðal annars farið yfir mikilvægi þess að byrja snemma að fara skynsamlega með peninga og leggja reglulega til hliðar inn á sparnaðarreikning. Fræðslunni lauk svo með sérstökum skemmtidegi fyrir vinnuskólann þar sem um 400 ungmenni komu saman. Við tókum þátt í gleðinni og stóðum fyrir ýmsum uppákomum. Á svæðinu var stórt lukkuhjól þar sem vinna mátti fjölbreytt gjafabréf. Þá kom Huppu-bíllinn, fullur af sætum og svalandi ís, og allir þátttakendur fengu Arion Sport-peysu að gjöf. Dagurinn lukkaðist afar vel og það skapaðist frábær stemning meðal ungmennanna eins og sést á myndunum.  

Fimm heppnir vinna 100.000 kr. 

Allir unglingar sem fengu sumarlaunin sín greidd inn á reikning hjá okkur eru sjálfkrafa með í Sumarlaunaleiknum og eiga möguleika á að vinna 100.000 kr. sem lagðar verða beint inn á reikning þeirra. Dregið verður í leiknum þann 14. september og verða þá fimm heppnir vinningshafar dregnir út. 

Það sem koma skal: Arion framtíð 

En Arion Sport er í raun aðeins byrjunin. Þegar unglingavinnunni sleppir og alvara lífsins tekur við — tekur Arion framtíð við keflinu. Fyrr í sumar kynntum við einmitt til leiks Arion framtíð, ný fríðindi fyrir ungt fólk á aldrinum 18 til 24 ára sem eru að stíga sín fyrstu skref í fjármálum. Þar er meðal annars boðið upp á launabónus ofan á launin, frítt kreditkort og góð kjör í ýmsu sem höfðar til þessa aldurshóps, samhliða fjármálafræðslu sem er sett fram á mannamáli. 

Þetta er nefnilega sama fólkið og er að flytja að heiman, hefja nám, stíga út á vinnumarkað og kaupa sína fyrstu íbúð — og við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að undirbúa þau fyrir þau skref. Þannig að þó að sumrinu sé að ljúka og skólinn taki við heldur ævintýrið áfram — bara á næsta stigi. 

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira