06.12.2021

The Ban­ker vel­ur Arion banka banka ársins 2021 á Ís­landi

Fjármálatímaritið The Banker, sem gefið er út af The Financial Times, hefur valið Arion banka sem banka ársins á Íslandi árið 2021.

Í rökstuðningi tímaritsins kemur fram að horft hafi verið til árangurs bankans og áherslu hans á umhverfis- og félagsþætti sem og stjórnarhætti (UFS). The Banker nefnir að auki nokkra þætti í stefnu og starfsemi bankans sem tímaritið telur hafa skipt sköpum í þeim árangri sem bankinn hefur náð. Sérstaklega er horft til þess að þjónusta bankans við fyrirtæki var efld með því að sameina fyrirtækjalána- og fjárfestingarbankastarfsemi á einu sviði innan bankans. En einnig til skapandi nálgunar bankans þegar kemur að vöru- og þjónustuþróun, bæði hvað varðar nýjar vörur og eldri. Sú staðreynd að lífeyrismál eru nú aðgengileg í Arion appinu vakti sérstaka athygli. En Arion banki, fyrstur banka, hefur gert viðskiptavinum sínum kleift að sækja um viðbótarlífeyrissparnað og nálgast upplýsingar um stöðu sinna lífeyrismála með einföldum og þægilegum hætti í Arion appinu.

Við valið á Arion banka sem banka ársins á Íslandi árið 2021 var einnig tekið til þess að bankinn hefur bætt grænni fjármálaþjónustu við vöruframboð sitt. Arion banki var fyrstur til að kynna hér á landi græn innlán og græn íbúðalán en að auki stendur viðskiptavinum til boða að taka græn bílalán. Græn innlán eru hugsuð fyrir einstaklinga, félagasamtök og fyrirtæki sem vilja leggja sitt af mörkum til umhverfisvænni framtíðar. Þannig hafa græn innlán m.a. verið nýtt til að fjármagna græn bílalán og mengunarvarnir. Í dag nema græn innlán bankans um 11 milljörðum króna.


Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira