29.09.2025

Upplýsingar til þeirra sem keyptu flug­miða hjá Play og greiddu með greiðslu­korti

Endurgreiðslur vegna færslna frá Play

Viðskiptavinir sem sendu inn endurkröfu með réttum og fullnægjandi gögnum eru í flestum tilfellum búnir að fá endurgreitt inn á kortin sín. Endurgreiðslan er endurgreidd á sömu dagsetningu og kaupin voru gerð.

Endurkröfuréttur

Þar sem flugfélagið Play hefur hætt starfsemi vill Arion banki taka fram að meginreglan er sú að handhafar Visa greiðslukorta (bæði debet- og kreditkorta) eiga endurkröfurétt þegar fyrirframgreidd þjónusta sem greitt var fyrir með greiðslukorti hefur ekki verið eða verður ekki innt af hendi.

Þeir korthafar sem eiga bókað flug með flugfélaginu Play sem greitt var fyrir með greiðslukorti geta gert endurkröfu vegna flugferðar sem ekki verður farin.
Viðskiptavinum er bent á að gera endurkröfu rafrænt í gegnum vef Arion banka og velja þar tegund endurkröfu „Play endurkrafa – þjónusta ekki veitt.

Endurkröfubeiðninni þarf að fylgja afrit af bókun þar sem eftirfarandi upplýsingar koma fram: Bókunarnúmer, fjöldi farþega, dagsetning flugs ásamt brottfarar- og áfangastað.

Við bendum korthöfum á að senda inn endurkröfubeiðni sem fyrst þar sem afgreiðsla þessara mála getur dregist. Tímafrestur til að gera endurkröfu er 120 dagar frá því flug átti að eiga sér stað.

Hafi korthafar bókað ferð í gegnum ferðaskrifstofu bendum við á að hafa samband við ferðaskrifstofuna.

Nánari upplýsingar má finna á vef Samgöngustofu.

Endurkröfur á færslur vegna gjafabréfa

Ef viðskiptavinur er með ónotað gjafabréf frá Play eða ef flug sem keypt var með gjafabréfi féll niður þá á að senda endurkröfu vegna þess svo hægt sé að skoða hvort endurkröfuréttur sé til staðar.

Eftirfarandi skilyrði þarf að uppfylla áður en endurkröfubeiðni er send:

  • Ef gjafabréfið er keypt af þriðja aðila (ekki Play) þá þarf korthafi að byrja á að hafa samband við þann sem seldi honum gjafabréfið og óska eftir endurgreiðslu. Upplýsingar um samskiptin og niðurstaða þeirra þarf að fylgja endurkröfunni.

  • Hafi gjafabréfin verið notuð að hluta eða öllu leyti til kaupa á flugi sem féll niður þá þurfa gögn að fylgja með endurkröfunni varðandi kaupin/bókunina.

  • Hafi gjafabréfið ekki verið notað þá þurfa að koma fram upplýsingar um það í endurkröfunni.

Fréttin var uppfærð 16. október 2025

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
8. október 2026

Lífstaktur: Verk Louisu Matthíasdóttur sýnd í Arion banka

Laugardaginn 10. október kl. 13.30 opnum við sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. Sýningin ber yfirskriftina Lífstaktur og hefst opnunin með fyrirlestri Huldu Stefánsdóttur um listakonuna, ævi hennar og störf.

Lesa meira
2. október 2026

Arion banki fellur frá boðuðum hækkunum og leitast við að halda hækkunum innan við 2,5%

Þann 23. júlí síðastliðinn tilkynntum við um hækkun ýmissa liða í verðskrá okkar sem áttu að taka gildi tveimur mánuðum síðar, eða 23. september. Um var að ræða gjöld sem ekki höfðu hækkað í fjölmörg ár, meðal annars vegna þjónustu þar sem bankinn nýtir þjónustu utanaðkomandi aðila, svo sem dreifingarfyrirtækja sem höfðu hækkað sín gjöld umfram gjöld bankans. Þessari boðuðu verðskrárbreytingu hefur ekki verið hrint í framkvæmd. 

Lesa meira
2. október 2026

Vinningshafar í Sumarlaunaleik Arion

Sumarlaunaleikur Arion er orðinn fastur liður hjá mörgum ungmennum á sumrin. Í ár fengu þau sem lögðu sumarlaunin sín inn á reikning hjá Arion sjálfkrafa þátttökurétt í leiknum og áttu þar með möguleika á að hreppa glæsilega vinninga. 

Lesa meira