02.07.2019

Úr­ræði varð­andi ráð­stöf­un á viðbótar­lífeyris­sparnaði fram­lengt

Samþykkt hefur verið frumvarp þess efnis að heimilt verði að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á fasteignaveðlán og til húsnæðissparnaðar í 2 ár til viðbótar þ.e. til 30. júní 2021.

RSK birti nýverið frétt á vefsvæði sínu um framlenginguna ásamt því að senda tölvupóst til þeirra sem eru að nýta sér úrræðið. Þar kemur fram að ef vilji er til að halda áfram að nýta sér úrræðið þá þurfi að skrá sig inn á www.leidretting.is og staðfesta áframhaldandi þátttöku fyrir 30. september 2019.

Athugið að ef ráðstöfun er ekki framlengd fellur hún úr gildi frá og með 1. júlí 2019, þeir sem staðfesta framlengingu fyrir 30. september nk. fá þá greitt uppsafnaða inneign frá og með 1. júlí 2019 inn á lánið sitt en eftir 30. september virkjast ráðstöfun einungis aftur frá þeim mánuði þegar ný umsókn berst RSK og uppsöfnuð inneign er þá ekki greidd inn á lánið.

Heimildirnar eru enn háðar ákveðnum skilyrðum og hámörkum sem má kynna sér á vef RSK í gegnum eftirfarandi hlekki:

Nánar um ráðstöfun inn á fasteignaveðlán

Nánar um húsnæðissparnað

Sækja um viðbótarlífeyrissparnað

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira