21.02.2023

Val­frjálst til­boð til hlut­hafa Origo hf. renn­ur út kl. 13:00 á morg­un 22. fe­brú­ar

AU 22 ehf., eigandi 29,3% hlutafjár í Origo hf., lagði fram valfrjálst tilboð til hluthafa Origo hf. um kaup á hlutum þeirra í félaginu á kr. 101 á hlut og rennur tilboðið út kl. 13:00 á morgun, 22. febrúar 2023.

AU 22 ehf. er eignarhaldsfélag í fullri eigu Umbreytingar II slhf., framtakssjóðs í rekstri Alfa Framtaks ehf. Alfa Framtak fjárfestir í fyrirtækjum, oftast sem meirihlutaeigandi og beitir sér markvisst fyrir virðisaukningu. Stefna Alfa Framtaks er að skila fyrirtækjum af sér í betra ástandi en þegar þau voru keypt og þannig skilja eftir jákvæð fótspor í íslensku viðskiptalífi.

Hægt er að samþykkja tilboðið með tvennum hætti, með því að:

  • samþykkja tilboðið rafrænt á vef valfrjálsa tilboðsins hér. Hægt er að skrá sig inn á vefslóðina með rafrænum skilríkjum, eða

  • fylla út og undirrita samþykkiseyðublað sem finna má hér og koma frumriti til Arion banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl. 13.00 þann 22. febrúar 2023.

Arion banki hf. er umsjónaraðili valfrjálsa tilboðsins fyrir hönd AU 22 ehf. Nánari upplýsingar eru veittar hjá Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. í gegnum tölvupóstfangið origo@arionbanki.is og í síma 444-7000.

Frétt þessi er útbúin í upplýsingaskyni og felur ekki í sér ráðgjöf af hálfu AU 22 ehf. eða Arion banka hf. Tilboðshöfum er bent á að afla sér viðeigandi ráðgjafar sérfræðinga.

Allar frekari upplýsingar um valfrjálsa tilboðið má finna hér.

Stjórn Origo hefur birt greinargerð um álit sitt á tilboðinu sem má finna hér.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira