11.03.2024

Varstu að flytj­ast til Ís­lands og vant­ar banka­reikning?

Að stofna bankareikning hjá Arion banka er mjög einfalt. Eina skilyrðið er að þú sért með íslenska kennitölu. Ef þú ert ekki nú þegar með íslenska kennitölu geturðu sótt um hana hjá Þjóðskrá Íslands á skra.is.

Þegar kennitalan er komin í hús geturðu valið um tvær leiðir til að stofna reikning:

1. Þú getur sótt um bankareikning með því að nota rafræn skilríki

Byrjaðu á því að sækja Arion appið. Þar má ganga í viðskiptasamband við bankann á einfaldan hátt með því að nota rafræn skilríki. (Til að fá rafræn skilríki þarf að hafa íslenska kennitölu og SIM-kortið í símanum þínum þarf að styðja við rafræn skilríki.)

Þegar þú ert komin/n með rafræn skilríki er auðvelt að stofna bankareikning, sækja um debetkort og nýta sér ýmsa aðra þjónustu í appinu.

Ef þú lendir í vandræðum með að nota rafrænu skilríkin skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur, annaðhvort með því að senda skeyti á arionbanki@arionbanki.is eða hringja í síma +354 444 7000.

2. Þú getur pantað tíma og komið í eitt útibúanna okkar

Ef þú ert ekki með rafræn skilríki, eða kýst að nota þau ekki, geturðu komið í næsta útibú bankans og stofnað þar til viðskipta. Við tökum alltaf vel á móti þér! Nauðsynlegt er að hafa með sér gild skilríki.

Við mælum þó eindregið með því að fáir þér rafræn skilríki og notir þau enda auðvelda rafrænu skilríkin aðgengi að margvíslegri þjónustu í íslensku samfélagi.

Nýttu þér besta bankaappið*

Í Arion appinu, sem er í boði á bæði íslensku og ensku, geturðu sinnt öllum helstu bankaviðskiptum þínum – sótt um kreditkort, fylgst með stöðunni, fryst kort, sótt bankaupplýsingar, stofnað sparnaðarreikning, keypt í sjóðum og svo framvegis.

*Arion appið var, sjöunda árið í röð, besta íslenska bankaappið samkvæmt Maskínu 2023.

Við einföldum þér lífið

Þjónustuver Arion banka og netspjallið á arionbanki.is eru opin alla virka daga á milli 9-16. Þá má alltaf senda okkur tölvupóst á arionbanki@arionbanki.is ef eitthvað er að vefjast fyrir þér.

Þessa grein má einnig lesa á ensku.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira