15.04.2023

Verslun er­lendis: Hætta á röngum heimildum og færslum vegna aura­jöfn­un­ar VISA

Viðskiptavinir sem versla erlendis í íslenskum krónum geta lent í því að upphæðir margfaldist vegna breytinga hjá VISA sem miða að því að hætta að nota aura í kortaviðskiptum.

Þetta vandamál mun mögulega vara í einhverja daga eða þar til allir færsluhirðar hafa uppfært sín kerfi.

Við hvetjum viðskiptavini til að velja gjaldmiðil þess lands sem þeir eru í en ekki íslensku krónuna við kaup á vörum og þjónustu erlendis. Einnig er mikilvægt að fylgjast vel með því hvernig færslan skilar sér og hvort hún sé ekki örugglega rétt.

Í þeim tilfellum þar sem færslan er ekki rétt þarf að gera endurkröfu á færsluna. Það er gert hér og þarf að taka fram að endurkröfuástæða sé „Röng upphæð“. Ekki er hægt að gera endurkröfu á heimild eða færslu á bið, bara á færslu sem er komin inn á reikningsyfirlit.

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira