12.02.2024

Við vör­um við svika­tilraunum – ekki sam­þykkja greiðsl­ur og inn­skráningu nema að vel at­hug­uðu máli

Í gangi eru svikatilraunir í nafni Arion banka. Því er rétt að ítreka að ekki skal samþykkja innskráningu eða millifærslu nema vera 100% viss um hvað býr þar að baki.

Tilraunirnar nú ganga út á að fá viðskiptavini til að skrá sig inn á falsaða innskráningarsíðu fyrir Arion netbankann. Slái fólk inn notendanafn og lykilorð eða notar rafrænt skilríki þá fá þeir sem standa að baki svikasíðunni þær upplýsingar í hendur. Í kjölfarið senda svikararnir beiðni þar sem fólk er beðið um að auðkenna sig, t.d. með því að gefa upp leyninúmer eða jafnvel með því að slá inn auðkenningarnúmer sem berst með SMS.

Við biðjum fólk að hafa eftirfarandi í huga:

Lykilorð og netbanki/app
  • Ekki samþykkja greiðslur og innskráningu nema að vel athuguðu máli

  • Gefðu aldrei upp lykilorð netbankans þíns í síma eða tölvupósti.

  • Ekki skrá lykilorðið þitt inn á öðrum vefsíðum en sjálfum netbankanum (https://netbanki.arionbanki.is/).

  • Notaðu flókin lykilorð með hástöfum, lágstöfum, tölum og táknum.

  • Forðastu að fara inn á netbankann í almenningstölvum.

  • Ekki láta neinum í té öryggisupplýsingar svo sem reikningsnúmer, merki reiknings, PIN-númer eða öryggiskóða.

  • Ef það birtast óvenjulegir sprettigluggar (e. pop-up) eða ef tölvan er óvenju hægvirk mælum við með að þú látir fagaðila skoða hvort tölvan er smituð af spilliforriti.

  • Tilkynntu óvenjulegar færslur í netbanka eða appi strax til bankans.

Tölvupóstur eða SMS frá Arion banka
  • Við biðjum þig aldrei að svara til að staðfesta persónulegar eða öryggistengdar upplýsingar.

  • Við biðjum þig aldrei um að gefa upp upplýsingar á borð við vegabréfsnúmer, kreditkortanúmer, CVV/CVC kóða eða gildistíma.

Nánari upplýsingar um öryggismál má finna hér.

Hvernig tilkynni ég um netsvik?

Ef netsvik eiga sér stað skal senda tilkynningu um það til Arion banka á netfangið netsvik@arionbanki.is.

Einnig er mikilvægt að hafa samband við lögregluna beint í gegnum netfangið abendingar@lrh.is.

Hægt að hafa samband við þjónustuver Arion banka í síma 444 7000. Utan hefðbundins afgreiðslutíma er hægt að hringja í neyðarnúmer kortafyrirtækja. Neyðarnúmer Rapyd er 525 2000.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira