08.12.2020

Vör­um við stuldi á korta­núm­er­um

Við vörum við svikapóstum þar sem fólk er beðið um að smella á hlekk þar sem farið er inn á falska síðu sem er látin líta út eins og síða frá póstfyrirtæki, svo sem DHL, eða greiðslusíða fjármálafyrirtækis. Þar er fólk m.a. beðið um að skrá inn kortanúmer og eru dæmi um að svikahrappar nýti sér kortaupplýsingar sem þeir fá með þessum hætti. Þurfa korthafar því að vera á varðbergi.

Meðal þeirra leiða sem reyndar eru við svikin er að fá fólk til að samþykkja að kortaupplýsingar séu skráðar í Apple Pay eða aðrar greiðsluleiðir, s.s. Garmin Pay og Fitbit Pay.

Mikilvægt er að gefa alls ekki upp Apple Pay kóðann því hann er einungis tengdur uppsetningu á Apple Pay Wallet í síma viðkomandi.

Fáir þú óvænt tilkynningu um tilraun til að skrá kortið þitt í Apple Pay, eða um tilraun til skráningar kortsins með öðrum hætti án þinnar vitundar, skaltu þegar í stað hafa samband við viðskiptabankann þinn.

  • Arion banki í síma 444-7000 eða í netspjalli á vef bankans

  • Íslandsbanki í síma 440-4000 eða í netspjalli á vef bankans

  • Landsbankinn í síma 410-4000 eða í netspjalli á vef bankans

Sé um að ræða tilkynningu eftir lokunartíma bankanna skal hringja í neyðarnúmer greiðslumiðlunarfyrirtækja:

  • Valitor - sími 525-2000

  • Borgun - sími 533-1400

Jafnframt er bent á að tilkynna slík svik til lögreglunnar á netfangið cybercrime@lrh.is.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu Arion banka þar sem fjallað er almennt um öryggismál og góð ráð til að versla á netinu.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira