17.09.2020

Vör­um við svika­póstum

Undanfarnar vikur hafa óprúttnir aðilar reynt að nálgast korthafa með tölvupósti eða SMS -skilaboðum í nafni þekktra innlendra fyrirtækja og beðið korthafa um að senda persónu- og kortaupplýsingar vegna væntanlegrar endurgreiðslu inn á greiðslukort. Þessa dagana er hrina í gangi þar sem verið er að senda út svikapósta í nafni Póstsins.

Af því tilefni er rétt að ítreka að almenna reglan er að fyrirtæki og stofnanir biðja ekki um kortaupplýsingar einstaklinga, hvorki í tölvupósti, í gegnum SMS eða með símtali. Fái korthafar slíka beiðni mælum við með að viðkomandi hafi beint samband við viðkomandi fyrirtæki eða stofnun og sannreyni uppruna slíkra beiðna.

Það er mikilvægt að korthafar staldri við þegar þeir fá slík skilaboð, hvort sem er í pósti eða með SMS og smelli ekki á hlekki sem oft fylgja slíkum skilaboðum því oft er um að ræða svikasíður.

Í sumum tilvikum eru svikararnir að nýta sér staðfestingarkóða í gegnum Vottun Visa. Korthafi fær SMS með staðfestingarkóða. Hann er beðinn að um að slá kóðann inn á svikasíðuna eða senda upplýsingar um hann í tölvupósti eða með SMS. Í SMS kemur fram hvaða færslu er verið að biðja um staðfestingu á, söluaðili, upphæð og gjaldmiðill. Ef færsla er staðfest með slíkum kóða þá er hún óafturkræf. Í öðrum tilvikum fær fær korthafi tilkynningu um að verið sé að skrá kortið hans í Apple Pay, Fitbit Pay eða Garmin Pay. Korthafi fær sendan kóða með SMS sem hann er beðinn um að slá inn á svikasíðu, senda í SMS eða með tölvupósti. Ef kóðinn er sleginn inn er kortið komið í Wallet svikarans.

Arion banki brýnir fyrir korthöfum að smella ekki á hlekki sem fylgja skilaboðum sem þessum og gefa ekki undir neinum kringumstæðum upp kortaupplýsingar, né staðfestingarkóða. Hafi fólk brugðist við slíkum skilaboðum eða eru í minnsta vafa um réttmæti upplýsinga sem þeir fá er brýnt að hafa samband strax við Arion banka eða þjónustuver Valitor utan opnunartíma bankans.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um netöryggi.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
20. október 2026

Við þökkum Óttalausu stúlkunni fyrir komuna!

Óhætt er að segja að koma Óttalausu stúlkunnar (e. Fearless girl) hingað til lands hafi vakið athygli. Styttan af óttalausu stúlkunni, eftir listakonuna Kristen Visbal, var upphaflega sett upp í New York af State Street Investment Management í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna árið 2017.

Lesa meira
15. október 2026

Arion banki á Arctic Circle

Arion banki tók þátt í Arctic Circle Assembly 2026 sem fór fram í Hörpu og Reykjavík EDITION dagana 8.-10. október. Í ár sóttu ráðstefnuna yfir 2.300 þátttakendur frá meira en 70 löndum og komu um 700 fyrirlesarar fram á yfir 200 málstofum.

Lesa meira
14. október 2026

Óttalausa stúlkan kemur til Íslands

Hin heimsþekkta stytta Óttalausa stúlkan (e. Fearless Girl), táknmynd seiglu og hugrekkis um allan heim, er á leið til Íslands. Tilefnið er sá árangur sem náðst hefur með Konur fjárfestum átaksverkefni Arion banka á undanförnum árum.  

Lesa meira