Bankaábyrgðir, skjalaábyrgðir og innheimtur eru öflugar lausnir til að tryggja að greiðslur og skuldbindingar standist, bæði innanlands og milli landa. Vöruframboð okkar hjálpar fyrirtækinu þínu að draga úr áhættu, auka traust og liðka fyrir hinum ýmsu viðskiptum.
Bankaábyrgð liðkar fyrir viðskiptum
Algengt er að nota bankaábyrgðir í viðskiptum innanlands og milli landa. Bankaábyrgðir geta liðkað fyrir viðskiptum og dregið úr óvissu í samskiptum við önnur fyrirtæki.
Bankaábyrgðir gera viðskipti einfaldari, minnka óvissu og auka traust milli aðila sem þekkjast ekki. Í stuttu máli er bankaábyrgð formleg trygging frá bankanum um að greiða ábyrgðarfjárhæð ef umsækjandi stendur ekki við skuldbindingar sínar samkvæmt undirliggjandi samningi. Þannig getur ábyrgðarhafi verið viss um að fá greitt, jafnvel þó umsækjandinn standi ekki í skilum.
Við erum tilbúin til að svara öllum spurningum sem þú hefur. Skoðum málin saman og finnum lausn sem hentar. Þú getur haft samband við okkur í gegnum netfangið fyrirtaeki@arionbanki.is.
Helstu bankaábyrgðir sem Arion banki býður upp á
Ef þú ert að leita að annars konar bankaábyrgð, hafðu endilega samband við okkur með því að senda línu á fyrirtaeki@arionbanki.is og við finnum lausnina saman!
Greiðsluábyrgðir
Allar ábyrgðir eru í raun greiðsluábyrgðir, þar sem bankinn ábyrgist greiðslu til ábyrgðarhafa standi viðskiptavinur ekki við skuldbindingar sínar gagnvart ábyrgðarhafa skv. undirliggjandi samningi. Yfirleitt er almenn greiðsluábyrgð útbúin ef ábyrgðin passar ekki inn í önnur form.
Húsaleiguábyrgðir
Húsaleiguábyrgð er trygging sem leigusali getur krafið leigutaka um til að tryggja efndir á leigusamningi – bæði greiðslu húsaleigu og bætur vegna tjóns á leiguhúsnæðinu.
Húsaleiguábyrgð er búin til út frá leigusamningi milli leigutaka og leigusala og tryggir yfirleitt nokkurra mánaða leigugreiðslur. Ef leigutaki stendur ekki í skilum getur leigusali gert kröfu í ábyrgðina innan gildistíma hennar.
Verkábyrgðir
Verkábyrgðir tryggja ábyrgðarhafa greiðslu standi umsækjandi ekki við skyldur sínar samkvæmt verksamningi. Verkábyrgðir geta til dæmis verið vegna byggingaframkvæmda, vegaframkvæmda, uppsetningu kerfa, sorphirðu, snjómoksturs o.fl.
Fyrirframgreiðsluábyrgðir
Fyrirframgreiðsluábyrgðir virka þannig að kaupandi greiðir fyrirfram fyrir ákveðið verk, framleiðslu, inn/útflutning á vörum o.s.frv. Ábyrgðin tryggir ábyrgðarhafann (kaupandann) þannig að hann getur krafið bankann um endurgreiðslu á fyrirframgreiðslunni standi ábyrgðarumsækjandi (seljandinn) ekki við skyldur sínar samkvæmt undirliggjandi samningi. Ábyrgðin virkjast þegar fyrirframgreiðslan hefur borist inn á reikning ábyrgðarumsækjanda.
Ferðamálastofuábyrgðir
Ferðamálastofuábyrgðir eru gefnar út til Ferðatryggingasjóðs í tengslum við leyfi til reksturs leyfisskyldrar starfsemi sem fellur undir lög og reglur tengdum Ferðamálastofu f.h. Ferðatryggingasjóðs.
VSK-ábyrgðir
VSK-ábyrgðir eru gefnar út til Skattsins. Algengastar eru ábyrgðir vegna sérstakrar skráningar á virðisaukaskattsskrá vegna byggingaframkvæmda. Ábyrgðin tryggir að bankinn greiði virðisaukaskattinn (inn- og útskatt) til Skattsins geri umsækjandi það ekki. Ábyrgðarfjárhæðin er tengd vísitölu og er uppfærð mánaðarlega, í lok mánaðar, í samræmi við gildandi vísitölu.
Tilboðsábyrgðir
Tilboðsábyrgðir tengjast tilboði viðskiptavinar í WTO/ESB tollkvóta á innfluttum landbúnaðarvörum frá Evrópu og eru gefnar út til viðeigandi ráðuneytis til tryggingar á efndum tilboðsgjafa.
Fiskmarkaðsábyrgðir
Fiskmarkaðsábyrgðir taka til óuppgerðra viðskiptaskulda sem stofnast til, frá og með útgáfudegi ábyrgðar þar til tveimur vikum fyrir lok gildistíma ábyrgðar útgefinnar til Reiknistofu fiskmarkaða hf. (eða annarra fiskmarkaða).
Bakábyrgðir
Bakábyrgð (Counter gurantee) er ábyrgð gefin út til annars banka erlendis sem trygging fyrir því að erlendi bankinn gefi út innlenda ábyrgð að okkar beiðni til þriðja aðila. Í raun má líta á bakábyrgðina sem skaðleysistryggingu. Það er þó háð samþykki móttökubanka bakábyrgðarinnar og banka ábyrgðarhafa að ábyrgðin öðlist gildi.
01/ 07
Innflutningsábyrgðir
Innflutningsábyrgðir eru notaðar þegar vörur eru fluttar til Íslands frá erlendum seljanda. Kaupandi sækir um innflutningsábyrgð hjá Arion banka, sem gefur út ábyrgðina og sendir hana til banka seljanda erlendis. Seljandinn sendir síðan vörurnar til Íslands út og skilar inn nauðsynlegum flutningsskjölum til síns banka, sem áframsendir þau til Arion banka. Arion banki greiðir fyrir skjölin ef þau uppfylla alla skilmála ábyrgðarinnar. Að greiðslu lokinni, eða eftir að gjalddagi hefur verið samþykktur, eru skjölin afhent kaupanda.
Þannig getur kaupandi dregið úr áhættunni af því að greiða fyrir vöru án fullnægjandi skjala og seljandi fær aukið öryggi um að greiðsla berist áður en kaupandi getur nálgast vöruna.
Innflutningsábyrgðir eru meðal annars notaðar í fyrstu viðskiptum milli aðila sem hafa ekki átt í viðskiptum áður eða þegar innflutningur er fjármagnaður af bankanum, sem tekur veð í innfluttu vörunum.
Útflutningsábyrgðir eru notaðar þegar vörur eru fluttar frá Íslandi til erlendra kaupenda. Útflutningsábyrgðir virka þannig að erlendi kaupandinn sækir um Letter of Credit ábyrgð í sínum banka erlendis. Þegar ábyrgðin hefur verið gefin út er hún send til Arion banka, sem tilkynnir hana til seljanda. Seljandinn sendir síðan vörurnar út og skilar inn útflutningsskjölum til Arion banka, sem sendir skjölin til erlenda bankans. Ef skjölin uppfylla alla skilmála ábyrgðarinnar greiðir erlendi bankinn til Arion banka, sem kemur greiðslunni til seljanda þegar hún berst. Þetta fyrirkomulag tryggir að greiðsla fari einungis fram ef rétt skjöl eru lögð fram og veitir bæði kaupanda og seljanda aukið öryggi. Það er sérstaklega gagnlegt í útflutningi til erlendra markaða þar sem greiðsluflæði getur verið ótryggt eða traust hefur ekki enn myndast milli kaupanda og seljanda. Í sumum löndum er þetta eini möguleiki kaupanda til að fjármagna kaup á innfluttri vöru þar sem banki hans tekur á sig greiðsluskyldu þegar skilmálar ábyrgðarinnar eru uppfylltir.
Arion banki býður útflutningsfyrirtækjum þjónustu við yfirferð útflutningsskjala áður en þau eru send til banka kaupanda. Markmiðið er að lágmarka líkur á að skjölin stangist á við skilmála ábyrgðarinnar eða að innbyrðis ósamræmi sé í skjölunum áður en þau eru send út.
Seljandi vörunnar skilar inn nauðsynlegum skjölum (t.d. reikningum, farmbréfum og upprunavottorðum) til Arion banka ásamt beiðni um innheimtu. Arion banki sendir skjölin áfram til erlends banka kaupanda, sem sér um að innheimta greiðsluna frá kaupanda. Skjölin eru aðeins afhent kaupanda þegar greiðsla hefur innheimst.
Þetta eykur öryggi í útflutningi á vörum, þar sem seljandi þarf hvorki að sinna sjálfur í innheimtu greiðslunnar né óttast að varan sé afhent áður en greiðsla berst. Þjónustan líkist útflutningsábyrgðum að því leyti að skjöl eru send gegn greiðslu, en ólíkt ábyrgðum fylgir ekki undirliggjandi ábyrgð eða fyrirfram skilgreindir ábyrgðarskilmálar.
Innflutningsinnheimta einfaldar og tryggir greiðslur til erlendra seljenda í innflutningi á vöru
Innflutningsinnheimta einfaldar greiðsluflæði í innflutningsviðskiptum. Arion banki tekur á móti skjölum seljanda frá erlendum banka og innheimtir greiðslu frá kaupanda áður en skjölin eru afhent.
Þjónustan er oft notuð þegar seljandi erlendis kýs að nota ekki innflutningsábyrgð en vill engu að síður tryggja að greiðsla fari fram áður en kaupandi fær aðgang að flutningsskjölum.
Með þessu skapast aukið öryggi í viðskiptum milli landa og greiðslur ganga hratt og örugglega fyrir sig.