Sam­an vinn­um við með um­hverf­inu

Sjálfbær lán eru óháð tegund lánveitinga eða lánstíma. Lánin eru því ýmist til fjárfestinga, kröfufjármögnunar eða rekstrarfjármögnunar.


Sjálfbær fjármálaumgjörð

Sjálfbær lán eru veitt til fyrirtækja í samræmi við sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans. Þau fyrirtæki sem uppfylla skilyrði sjálfbærra lánveitinga eru skoðuð sérstaklega og bera að jafnaði lægri fjármögnunarkostnað. Til þeirra eru gerðar ríkari kröfur um frammistöðu hvað varðar ófjárhagslega þætti starfseminnar ásamt ríkari upplýsingaskyldu um ófjárhagslega mælikvarða.

Við erum ávallt til í að setjast niður með þér. Sendu okkur línu á netfangið fyrirtaeki@arionbanki.is og saman finnum við tíma sem hentar.

Sjálfbær fjármögnun: umhverfis- og samfélagsáhrif

Undir sjálfbæra fjármálaumgjörð falla flokkar grænna lánveitinga sem hafa jákvæð áhrif á umhverfið og félagslegir flokkar fyrir verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið.



Áhrifa- og úthlutunarskýrsla grænnar fjármögnunar

Arion banki birtir árlega áhrifa- og úthlutunarskýrslu vegna grænnar fjármögnunar.

Sjálf­bær verk­efni

Sjálfbær lán eru óháð tegund lánveitinga eða lánstíma. Þau geta bæði verið til fjárfestinga, kröfufjármögnunar eða rekstrarfjármögnunar í formi veðskuldabréfa, lánssamninga, ádráttarsamninga o.s.frv.

  • Sjálfbærar byggingar

  • Sjálfbærar samgöngur

  • Sjálfbær skógrækt og landbúnaður

  • Endurnýjanleg orka, orkunýtni og kolefnissparnaður

  • Sjálfbær úrgangs- og frárennslisstjórnun

  • Hringrásarhagkerfi

  • Sjálfbær virðiskeðja í sjávarútvegi

Landslag - dróni
Sjálfbær fyrirtækjalán - Arion banki