Gjafakort mynd

Þú trygg­ir að við­takandi fái ávallt eitt­hvað við sitt hæfi

Hvernig kaupi ég gjafa­kort?

Það er einfalt að panta gjafakort hér á netinu.

Þú getur einnig kíkt í útibúið okkar að Smáratorgi, en þar má finna sjálfsala með gjafakort sem er opinn allan sólarhringinn. Þá taka þjónusturáðgjafar okkar ávallt vel á móti þér í öðrum útibúum okkar.

Panta gjafa­kort og fá heimsent

Einfalt og þægilegt – fáðu kortið sent heim og bættu inneign á það þegar þér hentar.

Panta gjafa­kort og sækja í úti­bú

Við útbúum kortið fyrir þig og höfum samband um leið og það er tilbúið til afhendingar.

Gott að vita!

Gjafakortið kemur í fallegum umbúðum með korti sem hægt þar sem hægt er að skrifa persónulega kveðju.

Hægt er að panta gjafakort með eða án inneignar. Gjafakort án inneignar getur þú fengið sent til þín og lagt inn á það þegar þér hentar.

Hámarksupphæð á hvert gjafakort er 200.000 kr. Vinsamlega athugið að samkvæmt mati Skattsins teljast gjafakort banka, sem vinnuveitendur afhenda starfsfólki sínu, til skattskyldra tekna hjá viðtakanda.

verslun

Svona teng­ir þú gjafa­kortið við snjall­tæk­in

Apple Wallet

Opnaðu Arion appið, ýttu á kortið þitt og „Add to Apple Wallet."

Fyrir handvirka skráningu:
Opnaðu Wallet og veldu „+“ táknið efst í hægra horninu og fylgdu leiðbeiningunum.

Google Wallet

Opnaðu Arion appið, ýttu á kortið þitt og „Add to Google Wallet."

Fyrir handvirka skráningu:
Opnaðu Google Wallet og veldu „Add to Wallet“. Sláðu inn staðfestingarkóða sem þú færð sendan með SMS.

Apple Watch

Opnaðu Apple Watch appið í símanum, veldu „Wallet & Apple Pay“ og síðan „Add Credit or Debit Card“.

Spurt og svarað