Sendu kortakvittunina beint í bókhaldið
Til að einfalda bókun á kreditkortafærslum þá bjóðum við korthöfum upp á að hengja kvittun og skýringu á kostnaði við kreditkortafærslur.

Til að einfalda bókun á kreditkortafærslum þá bjóðum við korthöfum upp á að hengja kvittun og skýringu á kostnaði við kreditkortafærslur.

Um leið og korthafi hefur hengt kvittun og/eða skýringu við kreditkortafærslu verða upplýsingarnar aðgengilegar í netbanka og vefþjónustu. Í kjölfarið geta starfsmenn sem sinna bókhaldi sótt gögnin og fært til bókunar.
Gögnin er hægt að nálgast í netbankanum eða bókhaldskerfum sem hafa sótt gögnin í gegnum kreditkortavefþjónustu bankans
Lausnin er þægileg og kemur upplýsingum á réttan stað með öruggum hætti og er ætluð til að einfalda líf korthafa og starfsfólks sem sinnir bókhaldi.
Þegar verslað er með kreditkorti fyrirtækis fær korthafi senda tilkynningu frá Arion appinu.
Korthafi getur smellt á tilkynningu frá Arion appinu eða opnar appið og velur fyrirtækjakortið og færsluna.
Á upplýsingaskjánum þarf að ýta á bréfaklemmuna, í hægra horninu, til þess að bæta viðhengi við færsluna. Ef valið er að taka mynd þá opnast myndavél símtækis. Við færsluna er síðan hægt að skrifa stutta lýsingu.
Eftir að viðbótarupplýsingar hafa verið skráðar þá birtist bréfaklemma við færsluna sem gefur til kynna að viðbótarupplýsingar (mynd og/eða lýsing) hafi verið hengdar við færsluna.
Upplýsingar birtast samstundis í netbanka
Þær upplýsingar sem korthafi skráir verða samstundis aðgengilegar á hreyfingaryfirliti kreditkortsins í netbankanum. Færslur sem hafa viðhengi eða skýringu eru merktar með bréfaklemmu.
Þegar smellt er á færslu er hægt að nálgast viðbótarupplýsingarnar, breyta þeim eða hlaða niður til þess að færa til bókunar.
Hvert fyrirtæki hefur val um að skilgreina tvo færslulykla sem korthafar geta notað til að flokka færslur. Dæmi um flokka eru verknúmer, fjárhagslykill, kostnaðarstöð, deild o.s.frv.
Þegar færslulykill hefur verið virkjaður er val um að forskrá valmöguleika fyrir korthafa undir hverjum færslulykli og er það gert með því að smella á plúsinn við hlið Heiti lykils og skrá Auðkenni og Heiti: