Tengdu bókhaldið við netbankann
Með B2B færð þú betri yfirsýn með rauntímagögnum, getur stytt vinnuferla og aukið hagræði.
Með B2B færð þú betri yfirsýn með rauntímagögnum, getur stytt vinnuferla og aukið hagræði.
B2B lausnin býður upp á fjölbreytta möguleika til að einfalda fjármálastjórum lífið.
Þessi viðbót við netbankann gerir þér kleyft að framkvæma allar algengustu aðgerðir beint í bókhaldskerfinu sjálfu, eykur hagræði og dregur úr villuhættu.
Minni innsláttur, minni villuáhætta
Einfaldara bókunarferli
Styttri vinnuferlar
Unnið í einu kerfi
Sparar tíma og eykur afköst
Hagræði í bókhaldi

B2B hentar öllum fyrirtækjum, sveitarfélögum, stofnunum og félagasamtökum, stórum sem smáum. Hægt er að byrja smátt og bæta síðan við fleiri aðgerðum síðar.
Hvorki er greitt stofngjald né árgjald til bankans vegna B2B þjónustunnar. Hafa ber þó í huga að ýmsar bankaaðgerðir sem framkvæmdar eru í gegnum B2B gætu verið gjaldskyldar.
Sækja yfirit og upplýsingar um innlán, finna kostnað og úttektarheimildir. Hægt að staðfesta eiganda og prókúruhafa á reikninga.
Stofna erlendar greiðslur (SWIFT), hvort sem er stakar eða fleiri. Sækja kvittanir.
Millifæra og stofna framvirkar greiðslur. Stofna greiðslubunka, greiða þá og setja í samþykktarferli.
Sækja yfirlit og hreyfingar kreditkorta sem og ítarupplýsingar um stök kort.
Senda inn rafræn skjöl, t.d. launa- og greiðsluseðla.
Sækja upplýsingar um gengi gjaldmiðla.
Það er einfalt að fá aðgang að B2B ef þú ert með netbanka fyrirtækja. Hugbúnaðarfyrirtækið sem sér um bókhaldskerfið þitt sér um uppsetningu þjónustunnar og tengir saman rafræn skilríki og notendaaðganga í netbankanum.
Við erum tilbúin til að svara öllum spurningum sem þú hefur – heyrðu í okkur ef þú hefur einhverjar spurningar um þjónustuna!
Hægt að hafa samband við okkur í gegnum netfangið fyrirtaeki@arionbanki.is
