Ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta er fjölbreytt og skapandi atvinnugrein og hefur lengi verið burðarás íslensks efnahagslífs. Við þekkjum þarfirnar vel og bjóðum upp á allar tryggingar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa á að halda.
Ferðaþjónusta er fjölbreytt og skapandi atvinnugrein og hefur lengi verið burðarás íslensks efnahagslífs. Við þekkjum þarfirnar vel og bjóðum upp á allar tryggingar sem fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa á að halda.
Arion og Vörður vinna saman á grundvelli þjónustusamnings um sölu og þjónustu trygginga.
Saman erum við með þjónustuskrifstofur um allt land svo að flestir viðskiptavinir geti sótt þjónustu í sinni heimabyggð.
Fáðu tilboð í tryggingar sem eru sérsniðnar að þínum þörfum.
Það er mikilvægt að hafa réttar tryggingar fyrir fyrirtækið, hvort sem það á við um starfsfólkið þitt, starfsemina eða búnaðinn.
Við vinnum náið með fyrirtækjum okkar og pössum upp á það með þeim að tryggingarnar endurspegli þarfir rekstrarins á hverjum tíma. Það gerum við með því að skilja þarfir þeirra, vera til staðar og auðvelda þeim tryggingaviðskipti.
Tryggir atvinnurekanda fyrir skaðabótaábyrgð sem á hann kann að falla vegna slysa á fólki eða skemmda á munum.
Tryggir atvinnurekendum sem framleiða og dreifa vörum fyrir skaðabótaábyrg sem á hann kann að falla.
Bætir tjón á lausamunum sem teljast ekki hluti af fasteigninni sjálfri, til dæmis vélar, lager, tölvubúnaður, húsgögn og verkfæri.
Bætir tjón á einstökum dýrum hlutum og gildir hvar sem er í heiminum.
Viðbót við lausafjártryggingu og bætir rekstrartjón sem getur orðið vegna samdráttar í vörusölu eða þjónustu í kjölfar tjóns sem bótaskylt er úr lausafjártryggingunni.
Bætir rekstrartjón sem getur orðið vegna samdráttar í vörusölu eða þjónustu í kjölfar vélbilunar.
Greiðir bætur til vátryggðs vegna slyss sem viðkomandi verður fyrir í starfi hjá vinnuveitanda.
Greiðir bætur vegna tímabundinnar eða varanlegrar örorku í kjölfar slysa. Trygging sem er kjörin fyrir sjálfstæða atvinnurekendur.

Greiðir bætur vegna tímabundinnar og varanlegrar örorku í kjölfar slysa eða sjúkdóma.
Bætir tjón vegna slysa eða óvæntra veikinda á vinnuferðum erlendis.
Tekur til tjóna sem geta orðið á vörum sem geymdar eru í frysti- eða kæligeymslum.
Tekur til skyndilegra, óvæntra og sýnilegra tjóna sem verða á tryggðu rafeindatæki.
Ábyrgðartrygging ökutækis og slysatrygging ökumanns og eiganda.
Valfrjáls viðbót sem bætir skemmdir á eigin ökutæki.
Brunatrygging ökutækja bætir tjón sem verður á ökutæki vegna eldsvoða.
Bætir tjón sem verður vegna eldsvoða, áreksturs, veltu eða annarra sambærilegra tilvika.
Lögboðin trygging sem bætir tjón á fasteign vegna eldsvoða.
Víðtæk og alhliða vernd fyrir atvinnuhúsnæði og aðrar fasteignir fyrirtækja.
Foktrygging bætir tjón á húsi eða húshluta, sem verður af völdum óveðurs.
Bætir tjón á venjulegu og sléttu rúðugleri í fasteign og við geymslu eða ísetningu glers.
Við vitum hversu mikil áhrif slys og óhöpp geta haft á daglegan rekstur fyrirtækja. Tjónaþjónustan okkar er til staðar allan sólarhringinn og veitir skjóta og persónulega afgreiðslu þegar fyrirtækið þarf á henni að halda.
Við setjum forvarnir í forgang og leggjum áherslu á faglegt samstarf við fyrirtæki og stofnanir í öryggis- og forvarnarmálum. Reynslan sýnir að góð öryggismenning kemur í veg fyrir slys og óhöpp, og dregur úr óvissu í rekstri.







