Netsvik

Ráð til að forð­ast netsvik

Internetið hefur að langflestu leyti einfaldað líf okkar og fært okkur tengsl við umheiminn á silfurfati. Við getum með einföldum hætti haft samband við ættingja og vini hinum megin á hnettinum og ekkert er því til fyrirstöðu að við verslum vörur og þjónustu í gegnum netið. Það er þó böggull sem fylgir skammrifi því óprúttnir aðilar hafa nú fengið ótalmargar nýjar leiðir til að hafa af fólk fé.

Það er gott að temja sér vissa siði þegar það kemur að rafrænum samskiptum og og því miður þá er best að sýna tortryggni en minni. Margir hafa brennt sig illilega á því að treysta röngum aðilum sem reyndust ekki vera þeir sem þeir sögðust vera.

Það er þó engin ástæða til þess að hræðast internetið heldur frekar að venja sig á nokkra hluti til að tryggja örugg samskipti. Það er hægt að líkja þessu saman við umferðarreglur sem við lærum og fylgjum til þess að tryggja öryggi okkar í umferðinni.

Hér listum við upp nokkur atriði sem gott er að fara eftir:

  • Athugaðu alltaf tölvupóstfangið sem póstur kemur frá. Ef það virðist undarlegt eða ótrúverðugt er líklega um svindl að ræða.

  • Ef póstur eða skilaboð virðast koma frá einhverjum sem þú þekkir en póstfangið eða tónninn er skrítinn, ekki svara. Sendu á viðkomandi nýjan póst á það netfang sem þú veist að er rétt eða hringdu í hann.

  • Ef þú færð óvenjuleg skilaboð á samfélagsmiðlum eða í öðrum skilaboðum frá vinum eða ættingjum, hringdu beint í þá til að sannreyna skilaboðin.

  • Aldrei senda lykilorð eða aðgangsupplýsingar á neinn. Heiðarleg fyrirtæki biðja aldrei um slíkar upplýsingar

  • Aldrei senda kreditkortanúmer eða mynd af kredit- eða debetkorti á neinn

  • Ef fyrirtæki biðja þig um greiðslu, hafðu samband við fyrirtækið sjálft og gakktu úr skugga um að þetta sé raunverulega frá þeim

  • Ef fjárfestingartilboð eða vinningar sem eru send á þig eru of góð til að vera sönn er það mjög líklega svindl

  • Ef vinir biðja þig um að senda sér kóða sem þú færð í sms eða annað slíkt er oftast um svindl að ræða

Ef þú heldur að þú hafir orðið fyrir netsvindli af einhverju tagi skaltu strax hafa samband við lögregluna.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira
Stefnir - berg - fjall

Fjöldi sparnaðarráða fyrir alla fjölskylduna

Sveinn Óskar Hafliðason er sölustjóri á viðskiptabankasviði Arion banka. Hann hefur mjög fjölbreytta og fróðlega nálgun á sparnað – sinn eigin, barna sinna og fjölskyldunnar í heild – og er duglegur að deila slíkum ráðum með öðrum, meðal annars í stuttum og læsilegum færslum á samfélagsmiðlinum Linkedin.

Lesa meira
Húsfélög og Félagasamtök

Hvernig getur yngra fólk sparað sér fyrir íbúð?

Katrín Lára Sigurðardóttir er ungur sérfræðingur hjá Arion banka og kveðst hafa byrjað snemma að spara sér fyrir fyrstu íbúðinni sinni.

Lesa meira