Reykjavík - Esja

Val á hús­næð­i, leigja eða kaup­a?

Fyrir kaup á fyrstu fasteign gilda eftirfarandi reglur

  • Útborgun í minnsta lagi 15% af kaupverði

  • Lán að hámarki 85% af kaupverði

Til móts við eigin sparnað er hægt að sækja um að nýta hluta af viðbótarlífeyrissjóðssparnaði skattfrjálst upp í útborgun á fyrstu fasteigninni sem þú kaupir. Þetta er að sjálfsögðu háð þeirri reglugerð sem er í gildi þegar þessi grein er skrifuð og gætu þær reglur breyst í framtíðinni.

Upphæðin á því láni sem hægt er að sækja um ræðst einkum af greiðslugetu og reglum sem Seðlabankinn hefur sett um annars vegar hversu háu hlutfalli kaupverðs má lána fyrir og einnig hversu háu hlutfalli af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum fólks má ráðstafa í fasteignalán. Reglurnar þegar þessi grein er skrifuð segja til um það að greiðslubyrði húsnæðisláns megi að hámarki vera 40% af tekjum heimilisins eftir skatt við kaup á fyrstu fasteign. Greiðslugeta þín er svo könnuð með greiðslumati sem auðvelt er að gera rafrænt á vef Arion banka.

Hvert svo sem skrefið í átt að því að flytja úr foreldrahúsum leiðir ykkur mælum við eindregið með því að yfirsýn yfir fjármálin sé til staðar á hverjum tímapunkti og við bjóðum ykkur velkomin að heyra í ráðgjöfum okkar með allar ykkar hugleiðingar.

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Tengdar greinar

Greinar yfirlit
Arion Konur fjarfesta5O4A0896 1

Konur fjárfestum!

Í rúm tvö ár höfum við hjá Arion unnið skipulega að stóru samfélagslegu verkefni sem nefnist Konur fjárfestum. Markmiðið hefur verið skýrt: Að fjölga þeim konum sem taka þátt í fjárfestingum, efla þekkingu kvenna á fjármálum með áhugaverðri fræðslu og styðja konur í því að ná fjárhagslegu sjálfstæði.

Lesa meira
Sparnaður í áskrift - kaffihús

Er of seint að fá sér kaffi núna?

Á myrkum fimmtudegi, hálf fimm síðdegis á síðustu mánuðum ársins, stendur miðaldra maður við kaffivélina og spyr sig þessarar áleitnu spurningar úr samnefndu lagi okkar ástkæra tónlistarmanns, hans heitinnar hátignar Prins Póló. En hvað þá um viðbótarlífeyrissparnað, er of seint fyrir mig að byrja núna? 

Lesa meira
landslag-vatn-gras-sandur

Velur sparnaðarleið eftir því hvert markmiðið er

Helena Kristín Brynjólfsdóttir er viðskiptastjóri hjá Premía-þjónustu Arion banka. Hún hefur áralanga reynslu úr íslensku fjármálakerfi og hefur beitt ólíkum aðferðum til að ávaxta persónulegan sparnað sinn í gegnum tíðina, allt eftir því hver markmiðin voru hverju sinni.

Lesa meira