Stuðningur við samfélagið

Við erum í samstarfi við fjölda félagasamtaka og fyrirtækja og styðjum til góðra verka í samfélaginu. Bankinn er bakhjarl m.a. Hönnunarmiðstöðvar, Handknattleikssambands Íslands, Nýsköpunarkeppni grunnskólanna og Ungra frumkvöðla.

Frá árinu 2007 höfum við verið bakhjarl Íþrótta- og ólympíusambands Íslands og þar með hluti af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ. Til margra ára hefur Ólympíufjölskyldan stutt dyggilega við bakið á ÍSÍ og íslenskri íþróttahreyfingu, með það að markmiði að efla íslenskt íþróttalíf og þátttöku Íslands á erlendum vettvangi. 

Við styðjum einnig veglega við góðgerðamál eins og Krabbameinsfélag Íslands og Rauða kross Íslands og á landsbyggðinni styðja útibú bankans við fjölbreytt íþrótta- og menningarstarf í heimabyggð sinni auk annarra málefna.