Netbanki
Velkomin í viðskipti
Lán
ÍbúðalánBílalánSkammtímalánEndurfjármögnunFasteignalífeyrislánGreiðslumat
Sparnaður
SparnaðarreikningarGjaldeyrisreikningarViðbótarlífeyrissparnaðurSkyldulífeyrissparnaðurEinkabankaþjónustaSjóðirHlutabréf
Kort og greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortErlendar greiðslurEndurkröfur
Fríðindi
Arion fríðindiArion framtíð FríðindareikningurArion PremíaEinkaklúbburinn
Tryggingar
Fjölskyldan og fasteigninLíf og heilsaFerðalög og áhugamálÖkutæki
Fjölskyldan
KrakkarnirUnglingarnirUnga fólkiðHeimilið50 ára og eldri
Einfaldaðu lífið
Endurfjármagnaðu láninRáð í greiðsluerfiðleikumFjármál og tryggingar á einum staðSettu sparnaðinn í áskrift
Á tímamótum
Fyrsta starfiðAð eignast barnAð skipta um starfAð fara á eftirlaunUmsýsla dánarbús
Fræðsla og ráðgjöf
Konur fjárfestumNetsvikGreinarFjármálaráðgjöf
Velkomin í viðskipti
Fjármögnun
Bíla- og tækjalánBankaábyrgðir og innheimturSjálfbær lánFjárfestingalánRekstrarlán
Ávöxtun
Innlánsreikningar fyrirtækjaGjaldeyrisreikningarEignastýringSjóðirHlutabréf
Greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortLaunagreiðendurErlend viðskipti
Lausnir
Arion appiðNetbanki ArionInnheimtuþjónustaFélagaþjónustaB2B
Tryggingar
Framleiðsla og iðnaðurSjávarútvegurLandbúnaðurVerslun og þjónustaFerðaþjónustaHeilbrigðis- og sérfræðiþjónusta
Rekstrarform
Lítil og meðalstór fyrirtækiStærri fyrirtækiEinyrkjarHúsfélög
Einfaldaðu reksturinn
Lykilaðgangur í netbankaRafræn skjöl og birtingarB2B
Ráðgjöf
FyrirtækjaráðgjöfFagfjárfestarEinkabankaþjónusta fyrirtækjaMarkaðsviðskiptiGjaldeyrismiðlunFjárfestingar á norðurslóðum
Þinn árangur
Allt fyrir fjármálastjórannÁrangur viðskiptavina
Stjórnskipulag
StjórnFramkvæmdastjórnStjórnarhættirStefnan okkarArion samstæðanSkipuritEignir til sölu
Mannauður
VinnustaðurinnÚtskriftarprógrammSækja um starfStarfsmannaleit
Sjálfbærni
Okkar sjálfbærniSjálfbær fjármál Árangurinn okkarSFDRStyrkir
Þjónusta
Útibú og hraðbankarHafðu sambandVelkomin í viðskiptiArion appiðNetbanki Arion
Regluverk
Áreiðanleikakönnun einstaklingaÁreiðanleikakönnun lögaðilaRéttarúrræði viðskiptavinaFjárfestaverndReglur og skilmálarPersónuverndFyrirvararVefkökur
Gögn
Vextir og verðskráUmsóknir og eyðublöðGjaldmiðlar
Fjölmiðlar
Samskipti við fjölmiðlaMyndabankiFréttirGreinar
Afkomukynning 1F 2026Arctic InvestmentsMarkaðsdagur Arion 2024
Fjárhagsupplýsingar
LykiltölurUppgjör og kynningarFjárhagsdagatalÁhætta og eiginfjárhlutfallHluthafafundir og aðalfundirFjárhagsleg markmið og framtíðarsýn
Hlutabréf
Skráð hlutabréfHluthafalistiFlagganirGreinendur
Skuldabréf
Fjármögnun og útgáfulýsingEndanlegir skilmálarSértryggð skuldabréfSjálfbær fjármálaumgjörðLánshæfismatÚtgáfuáætlun
Miðlun
Tengiliðir fjárfestaKauphallartikynningarSkráning að kauphallartilkynningum

Við tökum vel á móti þér

Það er einfalt og þægilegt að stofna til viðskipta hjá okkur

Velkomin í viðskiptiHafa samband
Þjónustuver

Opið virka daga 9-16

+354 444 7000
arionbanki@arionbanki.is

Styttu þér leið
Útibú og hraðbankarVextir og verðskráUmsóknir og eyðublöðReglur og skilmálarPersónuvernd
Áreiðanleikakönnun
EinstaklingarFyrirtækiSkráning skilríkja
Netsvik

netsvik@arionbanki.is

Netsvik
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedInTikTok

Arion banki

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Bankinn
  2. ▸
  3. Mannauður
  4. ▸
  5. Mannauðsstefna

Mannauðs­stefna

Starfsfólkið okkar er öflugur hópur fólks sem hefur metnað fyrir störfum sínum. Í sameiningu leggjum við okkur fram um að skilja þarfir og uppfylla væntingar viðskiptavina okkar, því árangur þeirra er okkar árangur.

Mannauðsstefnan okkar er samsett úr sex þemum sem öll eiga það sameiginlegt að stuðla að ánægju starfsfólks, vexti þess og helgun. Við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður og skapa jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi

Borgartun19-2-1800x1200

Skýr sýn í jafn­rétt­is­málum

Við virðum mannréttindi og jafnrétti ásamt því að leggja áherslu á fjölbreytileika í allri okkar starfsemi*.

Við vinnum eftir jafnlaunastefnu til að tryggja jöfn kjör fyrir jafnverðmæt störf og gagnsæi í launaákvörðunum. Einnig leggjum við áherslu á jöfn tækifæri og að vinnustaðamenning sé með þeim hætti að allt starfsfólk geti blómstrað í starfi.

Jafnréttis-og mannréttindastefna

Rétta fólkið

Markmiðið okkar er að halda í og laða að framúrskarandi starfsfólk og efla það í faglegum og persónulegum vexti.Við tryggjum að ráðningar fari fram með faglegum hætti og að í hvert starf sé valinn einstaklingur í samræmi við þarfir og stefnu hverju sinni. Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og gætum þess að vel sé staðið að þjálfun. Við leggjum einnig metnað í að vanda til viðskilnaðar við starfslok.

Stefna um starfslok vegna aldurs

Stöð­ug þró­un og fræðsla

Við bjóðum fjölbreytta fræðslu til þess að efla færni og þekkingu starfsfólks. Starfsfólk er hvatt til að sýna frumkvæði og metnað til þess að þróast í starfi og taka ábyrgð á eigin þekkingu.

Með því að fjárfesta í fræðslu sköpum við umhverfi fyrir starfsfólk til vaxtar og tryggjum fagmennsku.

Fræðslustefna
  Mannauðsstefnan okkar

Ár­angurs­drif­in menning

Við vinnum saman að því að ná árangri í þeim verkefnum sem okkur eru falin og hrósum þegar vel tekst til. Starfsfólk miðlar þekkingu og deilir upplýsingum til samstarfsfólks.

Með skilvirku vinnuumhverfi, skapandi hugsunarhætti og umbótamenningu finnum við lausnir og náum árangri. Við tileinkum okkur markmiðasetningu og mælum árangur.

Öfl­ug for­ysta

Hjá okkur starfa öflugir stjórnendur með fjölbreytta hæfni og skýra framtíðarsýn. Stjórnendur ganga fram með góðu fordæmi, eru hvetjandi og veita reglulega og uppbyggilega endurgjöf til starfsfólks.

Við ráðningar í stjórnendastöður er leitast við að ráða einstaklinga með fjölbreytta reynslu, færni og þekkingu.

Ánægja, líð­an og sam­skipti

Við leggjum okkur fram um að mynda hvetjandi starfsumhverfi og styðja við okkar fólk. Samskipti skulu einkennast af gagnkvæmri virðingu og er einelti, kynbundin eða kynferðisleg áreitni og ofbeldi aldrei liðið. Það er á allra ábyrgð að koma í veg fyrir slíkt.

Við stöndum vörð um heilsu og öryggi starfsfólks og leggjum áherslu á heilsueflandi starfsumhverfi og forvarnir.

Við bjóðum eftirsóknarvert starfsumhverfi og erum fjölskylduvænn vinnustaður. Með sveigjanleika í starfi og fjarvinnustefnu mætum við þörfum starfsfólks og stuðlum að bættu jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Til að framfylgja mannauðsstefnu og meta árangur í mannauðsmálum eru notuð ýmis mælitæki svo sem innri kannanir, samtöl, vinnustaðagreining, stjórnendamat, mælingar á starfsmannaveltu, mælingar á fjarveru, ráðningatölfræði, jafnréttistölfræði o.fl.

Í mannauðsstefnunni er tilvísun í starfskjarastefnu, sem er samþykkt á aðalfundi skv. tillögu stjórnar, auk þess sem vísað er í undirstefnur þar sem frekari útfærsla lykilþátta er skilgreind. Mannauðsstefnan er endurskoðuð árlega og samþykkt af stjórn. Undirstefnur mannauðsstefnunnar eru á ábyrgð mannauðs, uppfærðar eftir þörfum og er starfskjaranefnd stjórnar upplýst um breytingar sem gerðar eru eftir því sem við á.

*Í samræmi við EBA leiðbeiningar. Gögnum um fjölbreytileika og launamun kynjanna er safnað með reglubundnum hætti og frávik greind.