Netbanki
Velkomin í viðskipti
Lán
ÍbúðalánBílalánSkammtímalánEndurfjármögnunFasteignalífeyrislánGreiðslumat
Sparnaður
SparnaðarreikningarGjaldeyrisreikningarViðbótarlífeyrissparnaðurSkyldulífeyrissparnaðurEinkabankaþjónustaAllt um sjóðiHlutabréf
Kort og greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortErlend viðskiptiEndurkröfur
Fríðindi
Arion fríðindiFríðindareikningurArion PremíaEinkaklúbburinn
Tryggingar
Fjölskyldan og fasteigninLíf og heilsaFerðalög og áhugamálÖkutæki
Fjölskyldan
KrakkarnirUnglingarnirUnga fólkiðHeimilið50 ára og eldri
Einfaldaðu lífið
Endurfjármagnaðu láninRáð í greiðsluerfiðleikumFjármál og tryggingar á einum staðSparnaður í áskrift
Á tímamótum
Fyrsta starfiðAð eignast barnAð skipta um starfAð fara á eftirlaunUmsýsla dánarbús
Fræðsla og ráðgjöf
Konur fjárfestumNetsvikGreinarFjármálaráðgjöf
Velkomin í viðskipti
Fjármögnun
Bíla- og tækjalánBankaábyrgðir og innheimturSjálfbær lánFjárfestingalánRekstrarlán
Ávöxtun
Innlánsreikningar fyrirtækjaGjaldeyrisreikningarEignastýringSjóðirHlutabréf
Greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortLaunagreiðendurErlend viðskipti
Lausnir
Arion appiðNetbanki ArionInnheimtuþjónustaFélagaþjónustaB2B
Tryggingar
Framleiðsla og iðnaðurSjávarútvegurLandbúnaðurVerslun og þjónustaFerðaþjónustaHeilbrigðis- og sérfræðiþjónusta
Rekstrarform
Lítil og meðalstór fyrirtækiStærri fyrirtækiEinyrkjarHúsfélög
Einfaldaðu reksturinn
Lykilaðgangur í netbankaRafræn skjöl og birtingarB2B
Ráðgjöf
FyrirtækjaráðgjöfFagfjárfestarEinkabankaþjónusta fyrirtækjaMarkaðsviðskiptiGjaldeyrismiðlun
Þinn árangur
Allt fyrir fjármálastjórannÁrangur viðskiptavina
Stjórnskipulag
StjórnFramkvæmdastjórnStjórnarhættirStefnan okkarArion samstæðanSkipuritEignir til sölu
Mannauður
VinnustaðurinnÚtskriftarprógrammSækja um starfStarfsmannaleit
Sjálfbærni
Okkar sjálfbærniSjálfbær fjármál SFDRStyrkir
Þjónusta
Útibú og hraðbankarHafðu sambandVelkomin í viðskiptiArion appiðNetbanki Arion
Regluverk
Áreiðanleikakönnun einstaklingaÁreiðanleikakönnun lögaðilaRéttarúrræði viðskiptavinaReglur og skilmálarPersónuverndFyrirvararVefkökur
Gögn
Vextir og verðskráGjaldmiðlarUmsóknir og eyðublöð
Fjölmiðlar
Samskipti við fjölmiðlaMyndabankiFréttirGreinarArion greining
Arctic investments
Fjárhagsupplýsingar
LykiltölurUppgjör og kynningarFjárhagsdagatalÁhætta og eiginfjárhlutfallHluthafafundir og aðalfundirFjárhagsleg markmið og framtíðarsýn
Hlutabréf
Skráð hlutabréfHluthafalistiFlagganirGreinendur
Skuldabréf
Fjármögnun og útgáfulýsingEndanlegir skilmálarSértryggð skuldabréfSjálfbær fjármálaumgjörðLánshæfismatÚtgáfuáætlun
Miðlun
Tengiliðir fjárfestaKauphallartikynningarSkráning að kauphallartilkynningum

Við tökum vel á móti þér

Það er einfalt og þægilegt að stofna til viðskipta hjá okkur

Velkomin í viðskiptiHafa samband
Þjónustuver

Opið virka daga 9-16

+354 444 7000

Styttu þér leið
Útibú og hraðbankarVextir og verðskráUmsóknir og eyðublöðReglur og skilmálar
Áreiðanleikakönnun
EinstaklingarFyrirtækiSkráning skilríkja
Netsvik

netsvik@arionbanki.is

Netsvik
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedInTikTok

Arion banki

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Bankinn
  2. ▸
  3. ...
  4. ▸
  5. Mannauðsstefna
  6. ▸
  7. Fræðslustefna

Fræðslu­stefna

Markmið okkar er að efla og viðhalda faglegri þekkingu starfsfólks með markvissri og árangursríkri þjálfun. Það eykur starfsánægju og hæfni starfsfólks til að takast á við nýjar áskoranir og styrkir starfsþróun. Starfsfólk er hvatt til að sýna frumkvæði í að sækja sér fræðslu og endurmenntun í samráði við yfirmann.

Fræðslan og þjálfunin byggist á þörfum og stefnu fyrirtækisins en tekur jafnframt mið af þróun starfa og verkefna. Við leggjum áherslu á að starfsfólk hafi tækifæri til að efla bæði faglega og persónulega hæfni. Mikilvægt er að tryggja að starfsfólk búi yfir haldgóðri þekkingu á lögum og reglum sem tengjast starfssviði þess, til að tryggja fagmennsku og öryggi í starfi.

Markmið stefnunnar:

  • Efla og viðhalda þekkingu og hæfni starfsfólks.

  • Leggja áherslu á mikilvægi þess að starfsfólk sé ávallt vel upplýst um lög og reglur sem varða starfssvið þess.

  • Hvetja og virkja starfsfólk til að sýna frumkvæði og bera ábyrgð á eigin þekkingu og færni.

Fræðsla miðuð að þörfum starfsfólks:

Þekking á lögum og reglum
Það er lykilatriði að starfsfólk hafi góða þekkingu á þeim lögum, reglum og öryggiskröfum sem varða starfsemina. Sú þekking er lykilþáttur í því að veita örugga, faglega og áreiðanlega þjónustu. Hún gerir starfsfólki kleift að taka upplýstar og ábyrgar ákvarðanir.

Fagleg hæfni
Fagleg hæfni felur í sér þekkingu, færni og viðhorf sem starfsfólk þarf til að sinna starfi sínu á árangursríkan og ábyrgan hátt. Hún felur í sér þekkingu á stefnum fyrirtækisins, sérhæfða þekkingu á starfssviði, samskiptahæfni, lausnamiðaða hugsun og siðferðislega ábyrgð. Að efla faglega hæfni starfsfólks stuðlar að starfsþróun, eykur starfsánægju og veitir tækifæri til vaxtar innan fyrirtækisins.

Persónuleg hæfni
Persónuleg hæfni felur í sér hæfileika til að eiga í árangursríkum samskiptum og takast á við áskoranir í lífi og starfi, ásamt því að hafa stjórn á andlegri og líkamlegri heilsu og getu til að aðlagast breyttum aðstæðum. Þessi hæfni gerir einstaklingum kleift að vaxa bæði persónulega og faglega, ásamt því að liðka fyrir árangursríkri samvinnu við aðra.

Skyldu- og valkvæð fræðsla
Skyldufræðsla tekur mið af eðli starfa og byggist almennt á lögum, reglum og öryggiskröfum. Hún nær einnig til annarrar fræðslu, svo sem nýliðafræðslu, stjórnendafræðslu og fræðslu um vörur fyrirtækisins. Skyldufræðsla myndar fræðsluvísitölu sem er einn af lykilmælikvörðum fyrirtækisins.

Valkvæð fræðsla felur í sér námskeið og erindi sem starfsfólk getur valið að sækja eftir áhuga og þörfum. Slík fræðsla miðar oft að því að efla bæði faglega og persónulega hæfni.

Fræðsluform
Við leggjum áherslu á að bjóða upp á fjölbreytt fræðsluform sem taka mið af þörfum og óskum starfsfólks, með möguleika á fræðslu óháð staðsetningu. Í boði er rafræn og leikjavædd fræðsla ásamt staðkennslu. Í vissum tilvikum er boðið upp á námsstyrki og þátttöku í kostnaði vegna námskeiða utan fyrirtækisins. Einnig hefur starfsfólk aðgang að erindum á vegum ýmissa fagfélaga.

Við erum lærdómsfyrirtæki sem leggur mikla áherslu á að starfsfólk sé vel upplýst. Með því að fjárfesta í þekkingu og hæfni starfsfólks tryggjum við að Arion sé stöðugt í stakk búið til að mæta nýjum áskorunum og veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu. Það skapar umhverfi þar sem bæði fyrirtækið og starfsfólkið getur vaxið og dafnað í takt við breytingar í atvinnulífi og samfélagi.