

Hvort sem þú vilt fjárfesta fyrir 100 kr. eða milljónir þá kostar ekkert að kaupa og selja í sjóðum í appinu..
Við bjóðum fagfjárfestum þægilegt aðgengi að leiðandi sjóðastýringarfyrirtækjum með fjölbreyttu úrvali sjóða.
Sjóðurinn fjárfestir í innlánum, stuttum ríkis- og fyrirtækjaskuldabréfum og sértryggðum útgáfum fjármálafyrirtækja. Hann hentar þeim sem vilja ávaxta lausafé til skamms tíma og þola illa sveiflur í ávöxtun.
Markmið Stefnis – Lausafjársjóðs hs. er að fjárfesta í innlánum, víxlum, skuldabréfum og öðrum stuttum fjármálagerningum. Eignasafn sjóðsins mun ekki hafa meðallíftíma lengri en 180 daga.
Til að geta átt viðskipti með sjóði þarftu að stofna til verðbréfaviðskipta. Þú svarar nokkrum spurningum um þekkingu og reynslu og í kjölfarið stofnum við verðbréfasafn sem er nauðsynlegt fyrir uppgjör viðskipta með verðbréf og sjóði.
Við bjóðum upp á milligöngu með skráð og óskráð verðbréf, afleiður, vörslu eigna, útboð hluta- og skuldabréfa og sérsniðnar lausnir fyrir fagfjárfesta og fyrirtæki.
Fjárfestar geta átt viðskipti með stök skuldabréf í gegnum reynslumikla sérfræðinga markaðsviðskipta.
Hvort sem þú ert í inn- eða útflutningi eða ert að fjárfesta erlendis getum við aðlagað lausnir okkar að þínum þörfum. Fagleg þjónusta í gjaldeyrisviðskiptum, afleiðum og áhættustýringu.

Ef þú vilt eiga viðskipti á erlendum mörkuðum, aðstoðum við með milligöngu. Þú sérð bréfin í appinu og getur fylgst með þróun þeirra.
Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts. Ávöxtunin sem hér er birt er í íslenskum krónum.
Í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður teljist verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu bankans undir yfirliti sjóða þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Jafnframt er hægt að nálgast framangreind gögn í útibúum bankans. Upplýsingar þær sem hér koma fram eru einungis veittar í upplýsingaskyni og þær ber ekki að skoða sem tilboð á einn eða annan hátt og ekki skal líta á efnið sem ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga.
Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er með starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði og rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Stefnir er sjálfstætt starfandi fjármálastofnun sbr. lög nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf.
Upplýsingar þær sem hér koma fram byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Áskilinn er réttur til leiðréttinga. Arion banki eða starfsmenn bankans bera enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.