Netbanki
Velkomin í viðskipti
Lán
ÍbúðalánBílalánSkammtímalánEndurfjármögnunFasteignalífeyrislánGreiðslumat
Sparnaður
SparnaðarreikningarGjaldeyrisreikningarViðbótarlífeyrissparnaðurSkyldulífeyrissparnaðurEinkabankaþjónustaAllt um sjóðiHlutabréf
Kort og greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortErlend viðskiptiEndurkröfur
Fríðindi
Arion fríðindiFríðindareikningurArion PremíaEinkaklúbburinn
Tryggingar
Fjölskyldan og fasteigninLíf og heilsaFerðalög og áhugamálÖkutæki
Fjölskyldan
KrakkarnirUnglingarnirUnga fólkiðHeimilið50 ára og eldri
Einfaldaðu lífið
Endurfjármagnaðu láninRáð í greiðsluerfiðleikumFjármál og tryggingar á einum staðSparnaður í áskrift
Á tímamótum
Fyrsta starfiðAð eignast barnAð skipta um starfAð fara á eftirlaunUmsýsla dánarbús
Fræðsla og ráðgjöf
Konur fjárfestumNetsvikGreinarFjármálaráðgjöf
Velkomin í viðskipti
Fjármögnun
Bíla- og tækjalánBankaábyrgðir og innheimturSjálfbær lánFjárfestingalánRekstrarlán
Ávöxtun
Innlánsreikningar fyrirtækjaGjaldeyrisreikningarEignastýringSjóðirHlutabréf
Greiðslur
KreditkortDebetkortGjafakortLaunagreiðendurErlend viðskipti
Lausnir
Arion appiðNetbanki ArionInnheimtuþjónustaFélagaþjónustaB2B
Tryggingar
Framleiðsla og iðnaðurSjávarútvegurLandbúnaðurVerslun og þjónustaFerðaþjónustaHeilbrigðis- og sérfræðiþjónusta
Rekstrarform
Lítil og meðalstór fyrirtækiStærri fyrirtækiEinyrkjarHúsfélög
Einfaldaðu reksturinn
Lykilaðgangur í netbankaRafræn skjöl og birtingarB2B
Ráðgjöf
FyrirtækjaráðgjöfFagfjárfestarEinkabankaþjónusta fyrirtækjaMarkaðsviðskiptiGjaldeyrismiðlun
Þinn árangur
Allt fyrir fjármálastjórannÁrangur viðskiptavina
Stjórnskipulag
StjórnFramkvæmdastjórnStjórnarhættirStefnan okkarArion samstæðanSkipuritEignir til sölu
Mannauður
VinnustaðurinnÚtskriftarprógrammSækja um starfStarfsmannaleit
Sjálfbærni
Okkar sjálfbærniSjálfbær fjármál SFDRStyrkir
Þjónusta
Útibú og hraðbankarHafðu sambandVelkomin í viðskiptiArion appiðNetbanki Arion
Regluverk
Áreiðanleikakönnun einstaklingaÁreiðanleikakönnun lögaðilaRéttarúrræði viðskiptavinaReglur og skilmálarPersónuverndFyrirvararVefkökur
Gögn
Vextir og verðskráGjaldmiðlarUmsóknir og eyðublöð
Fjölmiðlar
Samskipti við fjölmiðlaMyndabankiFréttirGreinarArion greining
Arctic investments
Fjárhagsupplýsingar
LykiltölurUppgjör og kynningarFjárhagsdagatalÁhætta og eiginfjárhlutfallHluthafafundir og aðalfundirFjárhagsleg markmið og framtíðarsýn
Hlutabréf
Skráð hlutabréfHluthafalistiFlagganirGreinendur
Skuldabréf
Fjármögnun og útgáfulýsingEndanlegir skilmálarSértryggð skuldabréfSjálfbær fjármálaumgjörðLánshæfismatÚtgáfuáætlun
Miðlun
Tengiliðir fjárfestaKauphallartikynningarSkráning að kauphallartilkynningum

Við tökum vel á móti þér

Það er einfalt og þægilegt að stofna til viðskipta hjá okkur

Velkomin í viðskiptiHafa samband
Þjónustuver

Opið virka daga 9-16

+354 444 7000

Styttu þér leið
Útibú og hraðbankarVextir og verðskráUmsóknir og eyðublöðReglur og skilmálar
Áreiðanleikakönnun
EinstaklingarFyrirtækiSkráning skilríkja
Netsvik

netsvik@arionbanki.is

Netsvik
Samfélagsmiðlar
FacebookInstagramLinkedInTikTok

Arion banki

Borgartúni 19, 105 Reykjavík

kt: 581008 - 0150

Swift: ESJAISRE

LEI: RIL4VBPDB0M7Z3KXSF19

FyrirvararStillingar fótspora
  1. Fyrirtæki
  2. ▸
  3. ...
  4. ▸
  5. Hlutabréf
  6. ▸
  7. Verðbréfaviðskipti

Verð­bréfa­við­skipti

Fyrirtæki og aðrir lögaðilar geta átt í verðbréfaviðskiptum í Arion appinu eða netbanka. Þar er hægt að fylgjast með stöðu eignanna, ávöxtun og sækja hreyfingayfirlit hvenær sem þér hentar. *

Stofna verðbréfasafn
Hlutabréf

Stofna til verðbréfaviðskipta

Til að geta átt í viðskiptum með hlutabréf eða sjóði þarf að stofna til verðbréfaviðskipta. Í kjölfarið er stofnað vörslusafn. Vörslusafn er bankareikningur sem tengist verðbréfasafni og er nauðsynlegt fyrir uppgjör viðskipta með verðbréf og sjóði.

App - Verðbréfasafn - light

Ein­falt ra­f­rænt ferli

Einn - svg
Stofna verðbréfasafn

Prókúruhafi svarar nokkrum spurningum um þekkingu og reynslu á verðbréfaviðskiptum og skráir hverjir eigi að hafa umboð til að kaupa og selja.

Tveir - svg
Stofna LEI auðkenni

Ef ætlunin er að eiga viðskipti með hlutabréf þarf að stofna LEI-auðkenni en þess þarf ekki ef einungis er um sjóðaviðskipti að ræða.

Þrír - svg
Ganga frá kaupum

Velja viðeigandi sjóð eða hlutabréf, staðfesta kaupin og viðskiptin fara í vinnslu. Að vinnslu lokinn birtist eigin í verðbréfasafninu.

Fjöl­breytt úr­val sjóða í boði

Mikið úrval sjóða stendur fjárfestum til boða. Það kostar þig ekkert að kaupa og selja í sjóðum í appinu og netbanka og engin krafa um lágmarkskaup.

Einnig er auðvelt að stofna reglulegan sparnað í sjóðum með því að skrá félagið í áskrift.

Sjóðir

Fé­lög skráð á Að­al­mark­að og First North

Í Arion appinu og netbanka má sjá þau innlendu skráðu hlutabréf sem hægt er að eiga viðskipti með en mögulegt er að eiga viðskipti með. Kaup- og söluferlið er afar einfalt.

Veittur er 25% afsláttur af þóknun vegna hlutabréfaviðskipta sem eru framkvæmd í appi og netbanka.

Hlutabréf

LEI auð­kenni

Lögaðilum er skylt að vera með LEI-auðkenni (e. Legal Entity Identifier) til að eiga viðskipti með skráð verðbréf frá 1. september 2021.

Markmiðið er að gera alþjóðlegum eftirlitsaðilum kleift að fylgjast með viðskiptum einstakra lögaðila og bæta þannig eftirlit með kerfislegri áhættu og auðvelda rannsókn á misferli tengdu verðbréfaviðskiptum.

LEI-auðkenni
Landslag

Almennur fyrirvari vegna verðbréfaviðskipta

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á að ekki verði um neina ávöxtun að ræða eða að höfuðstóll tapist. Árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Vakin er athygli á að ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts gjaldmiðla.

Umfjöllun þessi er aðeins birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu eða ráðgjöf um að ráðast í eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Upplýsingar þær sem hér koma fram byggja á heimildum sem taldar eru áreiðanlegar en ekki er hægt að ábyrgjast að þær séu réttar. Arion banki áskilur sér rétt til að leiðrétta upplýsingar. Arion banki eða starfsmenn bankans bera enga ábyrgð á ákvörðunum eða viðskiptum sem aðilar kunna að eiga í ljósi þeirra upplýsinga sem hér koma fram.

Varðandi samanburð þann sem unnt er að gera á síðunni, ef viðskiptavinur kýs, skal tekið fram að samanburðurinn kann að vera marklaus. Fjármálagerningar fela í sér mismunandi áhættu og áður en tekin er ákvörðun um fjárfestingu er mikilvægt að kynna sér vel eðli viðkomandi fjármálagernings og áhættur tengdar honum. Samanburðurinn er einungis til upplýsingar en ætti ekki að vera lagður til grundvallar viðskiptum að óathuguðu máli. Ekki skal litið á niðurstöðu samanburðar sem ráðleggingu um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu.

Hvað varðar fjárfestingar í sjóðum er rétt að taka fram að í útboðslýsingu og lykilupplýsingum verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða fyrir almenna fjárfesta er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættu og hvort umræddur sjóður telst verðbréfasjóður eða sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta. Varðandi þá sjóði sem er að finna á vefsíðu bankans undir yfirliti sjóða þá má nálgast útboðslýsingu, lykilupplýsingar o.fl. vegna viðkomandi sjóðs með því að smella á heiti sjóðs. Jafnframt er hægt að nálgast framangreind gögn í útibúum bankans.

Arion banki er helsti söluaðili sjóða Stefnis hf. sem er með starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands sem rekstrarfélag verðbréfasjóða skv. lögum nr. 116/2021, um verðbréfasjóði og rekstraraðili sérhæfðra sjóða skv. lögum nr. 45/2020, um rekstraraðila sérhæfðra sjóða. Stefnir er dótturfélag Arion banka hf. Sjá nánari upplýsingar um sjóði Stefnis hf. á heimasíðu félagsins https://www.stefnir.is.

*Markaðsefni

Vakin er athygli á að þetta er markaðsefni sem miðlað er í markaðslegum tilgangi. Ekki er um að ræða upplýsingar sem bankinn þarf að veita samkvæmt lögum né skuldbindandi samning. Ekki er nóg að lesa upplýsingarnar sem hér eru veittar til að taka ákvörðun um fjárfestingu.