Við hjá Arion leggjum ríka áherslu á umhverfis- og félagsþætti í starfsemi okkar og góða og vandaða stjórnarhætti.
Bankinn hefur lagt áherslu á sjálfbært vöruúrval og býður meðal annars upp á græn íbúðarlán, bílalán, innlán og fyrirtækjalán.
Arion gegnir mikilvægu samfélagslegu hlutverki og við erum meðvituð um að starfsemi okkar hefur víðtæk áhrif.
Við setjum okkur markmið og birtum árangur hvað varðar þá þætti sem við höfum mest áhrif á.
Í útibúum okkar hefur þú aðgang að öflugum sérfræðingum í fjármálum einstaklinga og fyrirtækja.
Þjónustuverið er opið frá kl. 9:00 til 16:00, alla virka daga. Símanúmer þjónustuvers er 444 7000.
Netspjall er stysta leiðin að svarinu og alltaf opið. Þú getur einnig notað netspjallið til að fá samband við þjónustufulltrúa sem leysir hratt og örugglega úr fyrirspurn þinni.
Í hraðbönkum getur þú bæði tekið út og lagt inn, keypt gjaldeyri, greitt reikninga og jafnvel keypt gjafakort.
Kynntu þér möguleikana.
Í Arion appinu færðu frábæra yfirsýn yfir bankaviðskipti þín hvar og hvenær sem er. Appið er okkar stærsta útibú og er í stöðugri þróun. Níu ár í röð hefur Arion appið verið valið það besta á Íslandi.
Netbankinn er opinn allan sólarhringinn þar sem þú getur framkvæmt örugg og þægileg bankaviðskipti hvar og hvenær sem er.