Viðskipti með hlutabréf hafa aldrei verið einfaldari
Í Arion appinu getur þú stundað viðskipti með öll félög sem eru skráð á Aðalmarkað og First north.

Í Arion appinu getur þú stundað viðskipti með öll félög sem eru skráð á Aðalmarkað og First north.

Þú svarar nokkrum spurningum um þekkingu og reynslu þína af verðbréfaviðskiptum. Í kjölfarið stofnum við verðbréfasafn.
Verðbréfasafnið verður sýnilegt í appinu eftir nokkrar mínútur og þá getur þú byrjað að eiga viðskipti.
Þú velur hlutabréf eða sjóð sem þú vilt kaupa, viðskiptin fara í vinnslu og eignin verður sýnileg í verðbréfasafninu þínu.

Einfalt er að kaupa og selja bréf og hægt að ljúka viðskiptum með nokkrum smellum í Arion appinu. Þar getur þú einnig fylgst með rauntímagengi skráðra hlutabréfa á Aðalmarkaði þér að kostnaðarlausu.
Í Arion appinu getur þú fylgst með þínum hlutabréfum ásamt því að skoða hreyfingaryfirlit og ávöxtun. Þú getur stundað viðskipti með öll félög sem eru skráð á Aðalmarkað og First north.
Veittur er 25% afsláttur af þóknun vegna hlutabréfaviðskipta sem eru framkvæmd í appi eða netbanka.
Ef þú vilt eiga viðskipti á erlendum mörkuðum, aðstoðum við með milligöngu.
Þú sérð bréfin í Arion appinu.
Smelltu á tengilinn hér fyrir neðan fyrir nánari upplýsingar og aðstoð.

Hjá verðbréfamiðlun Arion færðu persónulega og faglega þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta. Við bjóðum upp á milligöngu með skráð og óskráð verðbréf, afleiður, vörslu eigna, útboð hluta- og skuldabréfa og sérsniðnar lausnir fyrir fagfjárfesta og fyrirtæki.
Til að mega eiga viðskipti með skráð verðbréf þurfa allir einstaklingar með erlent ríkisfang að skila svokölluðu NCI-auðkenni (e. National Client Identifier) til bankans.
NCI-auðkenni er alþjóðlegt auðkenni fyrir einstaklinga sem fjármálafyrirtæki nota í skýrsluskilum til eftirlitsaðila.


Með lögum nr. 115/2021 um markaði fyrir fjármálagerninga var innleidd í íslenskan rétt tilskipun Evrópusambandsins um markaði fyrir fjármálagerninga (e. Markets in Financial Instruments Directive, MiFID II). Markmið laganna er m.a. að tryggja gagnsæi, efla fjárfestavernd og auka traust fjárfesta.
Með lögunum breyttust ýmsar mikilvægar reglur sem lúta að því hvernig staðið skuli að verðbréfaviðskiptum. Lagðar eru til umfangsmiklar breytingar á þeim kröfum sem gerðar eru til skipulegra markaða, markaðstorga fjármálagerninga og verðbréfafyrirtækja. Meðal annars eru gerðar auknar kröfur til gagnsæis, um fjárfestavernd og viðskiptahætti, til stjórnar, stjórnarhátta og almennt um skipulag verðbréfafyrirtækja og skipulegra markaða.