Auknar heimildir í netbanka
Allir lögaðilar, atvinnurekendur og fyrirtæki geta stofnað lykilnotanda og fengið þannig miklu meiri stjórn á fjármálunum, sparað tíma og einfaldað alla vinnu.

Allir lögaðilar, atvinnurekendur og fyrirtæki geta stofnað lykilnotanda og fengið þannig miklu meiri stjórn á fjármálunum, sparað tíma og einfaldað alla vinnu.

Við bjóðum fyrirtækjum að skrá valið starfsfólk sem lykilnotendur, en þessir einstaklingar fá þá auknar heimildir til að stýra fjármálunum fyrirtækisins í netbankanum.
Það eina sem þarf er að fylla út umsóknareyðublað og senda á fyrirtaeki@arionbanki.is. Við bendum á að umsóknareyðublaðið þarf að vera undirritað af þeim sem ritar firma innan fyrirtækisins.
Hvað getur lykilnotandi gert?
Stofnað helstu vörur, s.s. nýja reikninga og kort á einfaldan hátt
Sótt um yfirdráttarheimild, stofnað eða afturkallað umboð á innlánsreikninga
Endurstillt lykilorð annarra notenda með einum smelli
Stýrt aðgöngum og hefurs kýra yfirsýn yfir fjárhag í rauntíma
Lykilnotendur geta auðveldlega breytt heimildum einstakra kreditkorta í netbankanum, svo lengi sem þær rúmast innan heildarheimildar fyrirtækisins. Slíkar breytingar eru gjaldfrjálsar og krefjast ekki undirritunar. Ef þörf er á að breyta heildarheimildinni sjálfri geta lykilnotendur sent inn beiðni í netbankanum, sem fer þá til rafrænnar undirritunar hjá þeim sem ritar firma fyrir hönd fyrirtækisins.
Auk þess geta lykilnotendur stofnað ný kreditkort í netbankanum – samningur fer sjálfkrafa í rafræna undirritun hjá korthafa og kortið stofnast strax að undirritun lokinni.


Arion appið er opið öllum. Korthafar fyrirtækjakorta geta því sótt Arion appið og nálgast allar upplýsingar um kortin sín um leið og það hefur verið stofnað.
Í Arion appinu geta korthafar:
Séð stöðu, færslur og heimild korts, fryst kort
Nálgast PIN númer kortsins
Séð kortanúmer, gildistíma og CVC númer
Samþykkt greiðslur í netverslun

Í Arion appinu er einfalt að hengja greiðslukvittun og skýringu við kortafærslurnar. Um leið og korthafi hefur hengt kvittun eða skýringu við kortafærsluna verða upplýsingarnar aðgengilegar í netbankanum.
Fyrirtækjakortin okkar bjóða upp á fjölbreytt fríðindi og ferðatryggingar sem henta mismunandi þörfum. Engin færslugjöld eru á kortunum, aðeins fast árgjald. Þau henta bæði fyrir innkaup í verslunum og á netinu, og auðvelt er að tengja þau við Apple Pay eða Google Pay fyrir hraðari og þægilegri greiðslur.