Besta bankaappið er fyrir alla
Fjölmargar lausnir sem henta fyrirtækjum.

Fjölmargar lausnir sem henta fyrirtækjum.


Fyrirtækjanotendur geta skipt á milli notenda mismunandi fyrirtækja í netbankanum þegar rafræn skilríki eru notuð við innskráningu í appinu, ásamt því að sinna persónulegum viðskiptum.
Þetta er mjög einfalt í framkvæmd og sparar tíma við innskráningu, auk þess að einfalda yfirsýn þeirra sem sinna fjármálum fyrir fleiri en eitt fyrirtæki.
Við bjóðum upp á sveigjanlegar lausnir sem mæta þörfum fyrirtækja til að ávaxta fé sitt með sem árangursríkustum hætti. Sama hvaða markmið viðskiptavinur hefur höfum við fjölbreyttar sparnaðarleiðir sem mæta þörfum hvers og eins.
Arion banki býður mikið úrval af innlánsreikningum í erlendum myntum.
Hægt er að velja óbundna reikninga eða reikninga með 3 eða 6 mánaða binditíma.
Í Arion appinu er einfalt að hengja greiðslukvittun og skýringu við kortafærslurnar. Um leið og korthafi hefur hengt kvittun eða skýringu við kortafærsluna verða upplýsingarnar aðgengilegar í netbankanum.
Við bjóðum fyrirtækjum að skrá valið starfsfólk sem lykilnotendur en þessir einstaklingar fá þá auknar heimildir til að stýra fjármálunum fyrirtækisins í netbankanum.
Fyrirtækjakortin okkar bjóða upp á fjölbreytt fríðindi og ferðatryggingar sem henta mismunandi þörfum. Engin færslugjöld eru á kortunum, aðeins fast árgjald. Þau henta bæði fyrir innkaup í verslunum og á netinu, og auðvelt er að tengja þau við Apple Pay eða Google Pay fyrir hraðari og þægilegri greiðslur.
Appið sjálft er viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Ef tengst er í gegnum 4G, 3G eða Edge (s.s. ekki WIFI) þá þarf að greiða símafyrirtækjunum fyrir gagnaflutning. Þetta er sambærilegt við öll önnur öpp á símum sem tengjast vefnum.
Millifærsla á nýja (óþekkta) aðila má vera samtals 50.000 kr. innan sólarhrings.
Dæmi: Ef millifært er 40.000 kr. á nýjan aðila þarf ekki auðkenningu. Ef önnur millifærsla á nýjan aðila á sér stað innan sama dags t.d. 12.000 kr. þá þarf auka auðkenningu fyrir þá millifærslu því hámarks upphæð innan dagsins er orðin hærri en 50.000 kr.
Athugið að þetta á ekki við ef millifært er á þekktan aðila.
Eftir 5 tilraunir eru appið sett í upphafsstöðu og öllum upplýsingum notanda eytt út af símanum. Þá þarf einungis að fara í gegnum innskráningarferlið aftur til að byrja upp á nýtt.
Með því að frysta kortið í appinu lokar þú fyrir notkun kortsins í verslunum, hraðbönkum og á netinu. Boðgreiðslur munu þó virka áfram sem og greiðslur með snjalltækjum í gegnum Apple Pay, Google Pay og Garmin Pay.
Hægt er að virkja kortið aftur í appinu.
Þá skráir þig inn í netbankann og aftengir símann. Það er gert undir „Stillingar“ > „Snjallsíma forrit“. Þar er listi yfir þá snjallsíma sem tengdir eru við netbankaaðganginn þinn. Til að aftengja er valið „Aftengja tæki“. Við það að aftengja er öllum upplýsingum tengdum appinu eytt næst þegar appið reynir að sækja gögn. Appið er eftir sem áður á símanum en það er ekki lengur tengt viðkomandi notanda.
Einfalt mál er að tengja símann aftur með því að fara í gegnum innskráningarferlið á símanum, en þá þarf að slá inn notandanafn, lykilorð og auðkennisnúmer eða skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Ef viðkomandi reikningur er ekki undir stillingum er hann ekki heldur skráður í netbankanum. Best er að hafa samband við þjónustuver eða næsta útibú til að tengja hann við netbanka.
Til þess að fá þessa virkni inn þarf að stilla það undir „Meira“- „Stillingar“ og þar undir „Tilkynningar“ að smella á „Ógreiddir reikningar“. Þar er hægt að velja hvort sendar eru tilkynningar um nýjan reikning sem berst eða reikninga sem eru á eindaga.