Við viljum auðvelda þér næstu skref

Það fylgja bæði spennandi tækifæri og mikilvægar ákvarðanir þegar þú stígur ný skref á starfsferlinum. Nýtt starf getur opnað dyr að aukinni reynslu, nýjum áskorunum og tækifærum til vaxtar. Hér höfum við tekið saman nokkur atriði sem skipta máli og gott er að huga að við þessi tímamót.

Tryggðu þér 2% launa­hækkun

Ef þú leggur 2–4% af launum í viðbótarlífeyrissparnað, bætir vinnuveitandinn við allt að 2% mótframlagi. Það er því eins og að fá launahækkun.

Því fyrr sem þú byrjar, því meiri verður ávinningurinn – smærri upphæðir safnast saman í umtalsverðan sparnað yfir tíma.

Öryggi fyrir þig og fjöl­skylduna

  • Allt á einum stað – Ef þú ert með bankaviðskipti hjá Arion og tryggingar hjá Verði færðu betri kjör og einfaldari yfirsýn yfir fjármálin.

  • Veldu tryggingar sem hentar þér – Þú velur tryggingar í takt við þínar aðstæður og þarfir, hvort sem það eru líf- og sjúkdómatryggingar, slysa- eða heimilistryggingar.

  • Auðveld yfirsýn – Í Arion appinu heildarmynd á einum stað, sem gerir þér kleift að halda utan um tryggingar og fjármál með einföldum hætti.

Gott að hafa í huga

Laun og ráðningarsamningur

Skoðaðu heildarlaunin og farðu vandlega yfir ráðningarsamninginn, þar sem fram koma uppsagnarfrestur, réttindi og skyldur.  

Nýttu persónuafsláttinn

Uppfærðu skattkort hjá nýjum vinnuveitanda. Ef þú ert í fleiri en einu starfi, stilltu skiptingu persónuafsláttar til að forðast of‑ eða vangreiðslu skatta. 

 

Virkjaðu viðbótarsparnað í nýju starfi

Mundu að gera samning um viðbótarsparnað í nýju starfi svo mótframlag og sparnaður haldi áfram að safnast.

Tryggingar

Farðu yfir tryggingarnar þínar og athugaðu hvort eitthvað þurfi að uppfæra í tengslum við nýtt starf.

Orlofsuppgjör

Athugaðu hversu mikið ótekið orlof þú átt og staðfestu að það sé greitt út við starfslok. 

Stéttarfélag og réttindi

Nýtt starf getur þýtt að þú sért í nýju stéttarfélagi. Staðfestu í hvaða félagi þú ert, hvaða kjarasamningur gildir og hvaða réttindi fylgja. 

Settu þér sparnaðar­markmið

Það er gott að huga strax að sparnaði og leggja mánaðarlega fyrir hluta af laununum. Margt smátt gerir eitt stórt og það munar um allt.

Margir skipta laununum sínum í þrjá hluta: peninga sem fara í daglegt líf, s.s. mat og afþreyingu, sparnað fyrir viðburðum, s.s. utanlandsferðum og síðan langtímasparnað, t.d. fyrir bíl eða íbúð.

Sparnaður - mæðgur

Greinar

Hlutamyndir - tölva sími skrifblokk blýantur

Hafðu yfirsýn yfir útgjöldin

Sparnaður er mikilvægur til þess að öðlast fjárhagslegt öryggi og hafa svigrúm til þess að mæta óvæntum útgjöldum. Við höfum tekið saman nokkur góð ráð sem gott er að hafa í huga þegar kemur að sparnaði.

Lesa meira
Körfuboltastelpa

Hagstæðasti sparnaðurinn?

Viðbótarlífeyrissparnaður er ein tegund séreignarsparnaðar. Um er að ræða sparnaðarform sem felur í sér að launþegi má ráðstafa allt að 4% af heildarlaunum sínum í viðbótarlífeyrissparnað og launagreiðandi greiðir 2% mótframlag.

Lesa meira
Ungt fólk - christine

Að byrja í fyrstu vinnunni – nokkur góð ráð

Varstu að byrja í fyrstu vinnunni? Til hamingju með það! Það er stórt skref að hefja störf á fyrsta vinnustaðnum og margt sem hafa þarf í huga. Við tókum saman nokkur hagnýt ráð sem gott er að hafa á bak við eyrað.

Lesa meira
Arion endurgreiðsla - Feðgin

Endurgreiðslan er hjá Arion

Árangur þinn skiptir okkur máli og viljum við að þú njótir góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Þess vegna færðu betri kjör ef þú ert bæði hjá Arion og Verði.

Lesa meira
Arion Konur fjarfesta5O4A5616 1

Hefur þú frelsi til að velja?

Öll starfandi á aldrinum 16 til 70 ára greiða í lífeyrissjóð samkvæmt lögum í landinu. Með því að greiða í lífeyrissjóð eru okkur tryggð ævilöng eftirlaun á eftirlaunaárum og lífeyrisgreiðslur ef til áfalla kemur, s.s. örorku-, maka- og barnalífeyri. Misjafnt er hvort starfsstéttir séu skyldugar til að greiða í ákveðinn lífeyrissjóð eða hvort þær hafi frelsi til að velja lífeyrissjóð fyrir sinn skyldulífeyrissparnað.

Lesa meira
01 / 03