Árangurinn okkar


Við höfum fengið jákvæða einkunn fyrir frammistöðu okkar í sjálfbærni frá matsaðilum. Við erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð í tengslum við umhverfi og samfélag og höldum ótrauð áfram á sömu vegferð.
Í nóvember 2025 gaf Reitun út nýtt sjálfbærnimat fyrir Arion banka. Matið byggir á frammistöðu á sviði umhverfis- og félagsþátta auk stjórnarhátta.
Bankinn fékk 90 stig af 100 mögulegum, sem eru flest stig sem gefin hafa verið, og er í flokki A3 sjötta árið í röð. Með óbreyttri einkunn hélt bankinn því í við auknar kröfur sem gerðar eru milli ára.