Landslag

Leiðandi í þjónustu við fag­fjár­festa

Fagleg og sérsniðin eignastýring og þjónusta fyrir lífeyrissjóði, tryggingarfélög, stofnanir, fyrirtæki og aðra fagfjárfesta.

Við leggjum grunn að árangri til framtíðar. 

Rekstur lífeyris­sjóða

Við bjóðum lífeyrissjóðum í stýringu upp á persónulega og sveigjanlega rekstrarþjónustu, að hluta eða í heild.

Þjónustan er mótuð í nánu samráði við viðskiptavini.

Lífeyris­bók­in

Bókin veitir víðtæka innsýn í málefni lífeyrissjóða. Markmiðið er að efla skilning á umhverfi lífeyrissjóða og þeim þáttum sem skipta máli í rekstri þeirra.

Eign­a­stýr­ing fyrir fag­fjár­festa

1.000 milljarðar+

Við sjáum um eignastýringu fyrir 10 fagfjárfesta með yfir 1.000 milljarða í stýringu.

10% af lífeyriskerfinu

Um 10% af heildareignum lífeyriskerfisins eru í eignastýringu hjá okkur.

Sveigjanleiki

Við vinnum eftir stöðlum og er þjónustan síðan aðlöguð að óskum viðskiptavina. 

Hagkvæmur rekstur

Þú getur látið okkur sjá um allan rekstur sjóðsins eða hluta hans. Með stærðarhagkvæmni og sérhæfingu náum við árangri.

Þú ákveður stefnuna

Þú skilgreinir rammann fyrir eignastýringu og við stýrum innan þessa ramma.  

Ábyrgar fjárfestingar

Arion banki er hluti af stefnu Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar. Bankinn er stofnaðili IcelandSIF.

Fag­leg vinnu­brögð

Eignastýring fyrir fagfjárfesta byggir á faglegum og skipulögðum vinnubrögðum. Stýringin fer eftir fyrir fram skilgreindri fjárfestingarstefnu, markmiði og vikmörkum, sem byggð eru á óskum viðskiptavina.

Við leggjum áherslu á virka eignastýringu, þar sem samsetning eignasafna er reglulega endurskoðuð í takt við markaðsaðstæður og þróun innan og á milli eignaflokka.

Endilega sendu okkur línu á netfangið amfag@arionbanki.is.

Framúrsk­ar­andi þjónusta

Þjónustan felur í sér regluleg samskipti þar sem farið er yfir markaðsþróun, breytingar á eignasafni, framtíðarhorfur og árangur. Við bjóðum einnig aðstoð við mótun fjárfestingarstefnu, stefnu um ábyrgar fjárfestingar og hluthafastefnu auk framkvæmdar og upplýsingagjafar um framfylgni þeirra.

Við erum aðili að reglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar og stofnaðili að IcelandSIF - samtökum um ábyrgar fjárfestingar.

Endilega sendu okkur línu á netfangið amfag@arionbanki.is.

Skógafoss

Við tök­um virk­an þátt í mennta­sam­félag­inu

Við erum virkur þátttakandi í menntasamfélaginu og höfum boðið háskólanemum starfsnám, þar sem þeir fá innsýn í dagleg störf teymisins og öðlast dýpri skilning á lífeyrismálum, mótun fjárfestingarstefnu, markaðnum og áhættustýringu. Við höfum einnig átt samstarf við nemendur tengt lokaritgerðum og rannsóknarverkefnum á háskólastigi.

Ef þú hefur áhuga á að vinna með okkur, hvort sem það snýr að starfsnámi, ritgerðarskrifum eða rannsóknaverkefnum, þá hvetjum við þig eindregið til að hafa samband við okkur með því að senda okkur línu á netfangið amfag@arionbanki.is.

Lífeyris­sjóðir í stýr­ingu

Stærsti séreignasjóður landsins, opinn öllum og án skylduaðildar. Arion og forverar hafa annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá upphafi. 

Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna er opinn öllum félagsmönnum FÍA. Arion hefur annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2012. 

Samtryggingarsjóður opinn öllum, með skylduaðild fyrir ákveðin aðildarfélög. Arion og forverar hafa annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2000. 

Hlutfallssjóður fyrir starfsmenn Búnaðarbanka Íslands, lokaður nýjum sjóðfélögum frá árinu 1998. Arion og forverar hafa annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá 2003. 

Séreignasjóður bankans sem býður upp á viðbótarlífeyrissparnað. Arion og forverar hafa annast rekstur og eignastýringu sjóðsins frá stofnun 1998. 

Aðr­ir fag­fjár­fest­ar

Eignastýring Arion sinnir einnig öðrum fagfjárfestum svo sem sjóðum í eigu tryggingafélaga, sveitafélaga og félagasamtaka.

Sér­fræðingar okk­ar

Reynslumikill hópur sérfræðinga með sterkt tengslanet meðal innlendra og erlendra fjárfesta. Við byggjum á traustum upplýsingakerfum, öruggum uppgjörsferlum og yfirgripsmikilli markaðsþekkingu.

Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér velkomið að senda okkur póst á amfag@arionbanki.is.

Hjörleifur Arnar Waagfjörð

Hjörleifur Arnar Waagfjörð

Forstöðumaður
Ásdís Karen Friðbjörnsdóttir

Ásdís Karen Friðbjörnsdóttir

Sjóðstjóri
Ásgeir Bragason

Ásgeir Bragason

Sjóðstjóri
Bjarni Pálmason

Bjarni Pálmason

Sjóðstjóri
Egill Tryggvason

Egill Tryggvason

Sjóðstjóri
Einar Gylfi Harðarsson

Einar Gylfi Harðarson

Sjóðstjóri
Eva Run

Eva Rós Birgisdóttir

Sjóðstjóri (í fæðingarorlofi)
Halldór Grétarsson

Halldór Grétarsson

Sjóðstjóri
Starfsmannamynd vantar

Karen Hrund Logadóttir

Sérfræðingur
Máney Alda Rúnarsdóttir

Máney Alda Rúnarsdóttir

Sérfræðingur
Ólafur Örn Jónsson

Ólafur Örn Jónsson

Sjóðstjóri