

Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. hét áður Eftirlaunasjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands. Þegar Búnaðarbanka Íslands var breytt í hlutafélag 1. janúar 1998 fékk sjóðurinn nafnið Lífeyrissjóður starfsmanna Búnaðarbanka Íslands hf. Við breytinguna var ríkisábyrgð afnumin og bankinn borgaði í sjóðinn þá fjárhæð sem á þeim tíma þótti nægja til að standa undir framtíðarskuldbindingum hans. Í dag greiðir sjóðfélagi mánaðarlega 4% iðgjald af launum en launagreiðandi 14,4%.
Sjóðurinn er hlutfallssjóður, þar sem réttindaávinningur er 2,125% fyrir hvert ár í 100% starfi. Við breytinguna 1. janúar 1998 áttu sjóðfélagar kost á því að velja á milli þess að vera áfram í hlutfallssjóðnum eða að flytja réttindin í stigasjóð og séreignarsjóð. Eftir það val var sjóðnum lokað og því hafa nýir sjóðfélagar ekki bæst í sjóðinn frá þeim tíma.
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Guðmundur Thorlacius Ragnarsson.
Í Lífeyrisþjónustu Arion banka starfar öflugur hópur sérfræðinga sem er reiðubúinn til að aðstoða þig með lífeyrismál þín. Hafir þú einhverjar spurningar, hikaðu þá ekki við að hafa samband við okkur í síma 444 7000. Við erum við símann milli kl. 10 til 15, alla virka daga.
Móttaka og þjónusta við sjóðfélaga er í Arion banka, Borgartúni 19, 105 Reykjavík, einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið lifeyristhjonusta@arionbanki.is.
Umsókn um útgreiðslu ellilífeyris
Umsókn um útgreiðslu hálfs ellilífeyris
Umsókn um útgreiðslu maka- og barnalífeyris
Umsókn um útgreiðslu örorku- og barnalífeyris
Umsókn um skiptingu ellilífeyrisréttinda má nálgast hjá Landssamtökum lífeyrissjóða.
Lögfræðingur frá Háskóla Íslands 1989
Héraðsdómslögmaður 1992
Löggiltur verðbréfamiðlari 1999
Aðalmaður í stjórn LSBÍ 1998-2011 og varamaður 2020-2021
Framkvæmdastjóri LBI ehf. frá 2009
BS.c. gráða í hagfræði frá Háskóla Íslands 2019
MS í hagfræði frá Barcelona School of Economics með áherslu á þjóðhagfræði og fjármálamarkaði 2021
Starfar sem hagfræðingur hjá Samtökum ferðaþjónustunnar frá 2022
Hagfræðingur á hagfræði- og peningastefnusviði Seðlabanka Íslands 2021-2022
Sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta hjá Arion banka 2019-2020
Stjórnarmeðlimur og ein stofnenda HKH – Hagsmunafélags kvenna í hagfræði
Viðskiptafræðingur HÍ 1991
Löggiltur verðbréfamiðlari 2002
Skrifstofustjóri Búnaðarbanka Selfossi 1991-94
Útibústjóri Búnaðarbanka Selfossi 1994-2005
Forstöðumaður Útlánaeftirlits Landsbanka 2005-08
Forstöðumaður Viðskiptabankasviði LB 2008-11
Formaður Fagráð LB 2011-2014
Lánasérfræðingur Útlánamati LB 2014-2025

Bergrún Lilja Sigurjónsdóttir, kjörin á ársfundi 2022
Sigurður Kristjánsson, kjörinn á ársfundi 2021
Sveinn Gíslason, fyrst skipaður af Arion banka sem varamaður 2025
Ásta Eyjólfsdóttir
Diljá Matthíasardóttir
Ingimundur Sigurmundsson
Ársfundur LSBÍ verður haldinn 9. júní nk. kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka að Borgartúni 19. Venju samkvæmt opnar húsið um klukkustund fyrr kl.16.15.
Dagskrá ársfundar:
Skýrsla stjórnar
Kynning á ársreikningi
Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun
Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins
Stjórnarkosning
Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum
Kjör endurskoðanda
Tillaga um tilnefningu utanaðkomandi nefndarmanns í endurskoðunarnefnd
Laun stjórnarmanna
Önnur mál
Tillögur til ályktunar sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn sjóðsins eigi síðar en viku fyrir ársfund. Tillögur sem sjóðfélagar óska eftir að teknar verði fyrir skal senda framkvæmdastjóra sjóðsins á netfangið gudmundur.t.ragnarsson@arionbanki.is.
Tilkynningar um framboð skal senda á netfangið gudmundur.t.ragnarsson@arionbanki.is.
Hafir þú spurningar um sjóðinn, hikaðu þá ekki við að hafa samband við starfsfólk Lífeyrisþjónustu Arion banka í síma 444 7000 eða senda tölvupóst á lifeyristhjonusta@arionbanki.is.
Yfirleitt er átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa- og skuldabréfa-fjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og erfiðari er að selja eignirnar til skemmri tíma.
Í gær, mánudaginn 10. mars sl., birtust fréttir um að ráðgjafar 18 lífeyrissjóða annars vegar og viðræðunefnd fjárlaga- og efnahagsráðherra hins vegar hefði lagt fram tillögu að uppgjöri á skuldabréfum útgefnum af ÍL-sjóði (áður Íbúðalánasjóði), sem greiða munu fyrir slitum á sjóðnum. LSBÍ er meðal þeirra lífeyrissjóða sem á slík skuldabréf.
LSBÍ er umhugað um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga. Persónuvernd einstaklinga skiptir sjóðinn miklu máli og er lögð sérstök áhersla á að persónuupplýsingar séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti. LSBÍ útvistar eignastýringu og daglegum rekstri sjóðsins, að undanskilinni framkvæmdastjórn, til Arion banka á grundvelli samnings við bankann. Nær öll vinnsla persónuupplýsinga fer því fram hjá Arion banka. LSBÍ og Arion banki koma fram sem sameiginlegir ábyrgðaraðilar á þeim vinnslum sem Arion banki gerir f.h. sjóðsins. Öll vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi persónuverndarlög. Nánar um hvernig Arion banki vinnur persónuupplýsingar f.h. LSBÍ er að finna í persónuverndaryfirlýsingu Arion banka, hér. Persónuverndaryfirlýsingin tekur til allra sjóðfélaga sjóðsins og annarra sem kunna að hafa samband við LSBÍ.