09.06.2026

Inn­lendar sér­hæfð­ar fjár­festingar LS­BÍ

Í þessari umfjöllun verður farið yfir hvernig LSBÍ hefur nálgast uppbyggingu á innlendum sérhæfðum fjárfestingum ásamt því að stiklað verður á stóru um einstakar fjárfestingar.

Þar sem lífeyrissjóðurinn er lokaður fyrir nýja sjóðfélaga og líftími lífeyrisskuldbindinga er að styttast þá hefur sjóðurinn minna svigrúm, en lífeyrissjóðir almennt til að fjárfesta í sérhæfðum fjárfestingum.

Með sérhæfðum fjárfestingum er yfirleitt átt við fjárfestingar sem eru frábrugðnar hefðbundnum hlutabréfa- og skuldabréfafjárfestingum að því leyti að þær eru oft óskráðar, með lengri binditíma og takmarkaðan seljanleika til skemmri tíma. Sérhæfðar fjárfestingar gegna hlutverki í heildarsamsetningu eignasafnsins, en oft byggir ávöxtun þeirra á öðrum drifkröftum en til að mynda hefðbundnir skráðir fjármálagerningar og tengjast því síður skammtímasveiflum á fjármálamörkuðum. Aðgengi fagfjárfesta, svo sem lífeyrissjóða, að þessum eignaflokki hefur bæði verið í formi beinnar fjárfestingar eða óbeinnar fjárfestingar í gegnum ýmiss konar form af sérhæfðum sjóðum.

LSBÍ - Innlendar sérhæfðar fjárfestingar - júní 2026

Deila grein:

facebookxmaillinkedin

Fleiri fréttir

Fréttayfirlit
3. nóvember 2026

Arion banki ráðgjafi við sölu Fjarðarkaupa

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hafði umsjón með söluferli Fjarðarkaupa fyrir hönd eigenda félagsins. Söluferlinu lauk með samningum um sölu á bæði verslunarrekstri Fjarðarkaupa til Samkaupa, dótturfélags Dranga hf., og fasteigninni að Hólshrauni 1 í Hafnarfirði, en kaupandi fasteignarinnar er fasteignafélagið Kaldalón hf. 

Lesa meira
2. nóvember 2026

Arion banki styrkir Reykjalund um þrjár milljónir króna

Í 17 ár hefur Creditinfo greint rekstur íslenskra fyrirtækja og veitt framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangur sinn. Að baki þeim árangri liggur mikil vinna enda þarf að standast ströng skilyrði til að komast á listann. 

Lesa meira
29. október 2026

Arion banki og Kardio í samstarf

Arion banki og Kardio hafa undirritað samstarfssamning sem tengir saman lausnir Kardio fyrir útgjaldastýringu og fjölbreytta greiðsluþjónustu Arion við fyrirtæki. 

Lesa meira