Við finnum bestu lausnina saman
Þegar greiðsluerfiðleikar koma upp er mikilvægt að bregðast hratt við og kanna hvaða úrræði eru í boði til að greiða úr málunum.

Þegar greiðsluerfiðleikar koma upp er mikilvægt að bregðast hratt við og kanna hvaða úrræði eru í boði til að greiða úr málunum.

Það geta allir lent í greiðsluerfiðleikum og stundum breytast aðstæður óvænt. Við skiljum að það getur verið erfitt að standa skil á greiðslum á réttum tíma. Þá er mikilvægt að bregðast hratt við og ræða mögulegar lausnir.
Við aðstoðum þig við að finna bestu mögulegu lausn til að greiða úr vandamálum. Hér fyrir neðan finnur þú nánari upplýsingar um þau úrræði sem eru í boði. Einnig getur þú alltaf sent okkur fyrirspurn á netfangið arionbanki@arionbanki.is og við svörum um hæl.

Þú getur dreift kreditkortareikningnum þínum í allt að 18 mánuði í appi eða netbanka.

Engar fastar afborganir eru af heimildinni heldur greiðir þú eingöngu vexti af þeirri upphæð sem þú notar hverju sinni. Þannig getur þú hagað endurgreiðslunni eftir þínum þörfum.

Núlán getur verið góður kostur ef upp koma óvæntar aðstæður og þú þarft að brúa bilið. Það getur einnig verið hentugt ef þú ert með margar raðgreiðslur, eða lán sem þú vilt sameina.
Ef þú stendur frammi fyrir talsverðri aukningu á greiðslubyrði íbúðaláns gæti verið gagnlegt fyrir þig að skoða endurfjármögnun.
Við bjóðum nýbökuðum foreldrum að lækka greiðslurnar á íbúðalánum sínum um allt að helming á meðan þau eru í fæðingarorlofi.
Þegar þú setur greiðslufestu á lánið þitt greiðir þú fasta fjárhæð í 12 mánuði, sem er lægri en mánaðarleg greiðsla samkvæmt skilmálum lánsins.
Ef þú ert með mörg lán hjá einum eða fleiri lánveitendum getur verið hagkvæmt að sameina þau í eitt lán á betri kjörum.
Ef þú hefur orðið fyrir tekjumissi bjóðum við þér að lækka greiðslur tímabundið. Skilyrði er að lánið sé á fasteign í þinni eigu og þú hafir þar lögheimili.
Mánaðarlegar greiðslur af höfuðstól eru þá frystar og eingöngu greiddir vextir af höfuðstól yfir tiltekinn tíma.
Það er mikilvægt að hunsa ekki vandamálið. Skuldir hverfa ekki af sjálfu sér, því heiðarlegri sem þú ert um vandamálið því líklegra er að við getum veitt þér bestu mögulegu aðstoð.
Því fyrr sem þú bregst við og biður um hjálp, því auðveldara er að leysa úr vandamálinu.
Hér má sjá nokkur algeng merki sem geta bent til greiðsluerfiðleika:
Þú hækkar lánsfjárhæð eða yfirdrátt reglulega
Þú átt erfitt með að standa í skilum með mánaðarlegar afborganir
Þú breytir gjalddaga mánaðarlegra greiðslna reglulega
Þú hefur áhyggjur af fjárhagnum eða endurgreiðslu skulda
Þú eyðir venjulega meiru heldur en þú færð í tekjur
Þú reiðir þig á lántökur til þess að halda rekstrinum gangandi
Þú færð regluleg bréf vegna ógreiddra reikninga eða vangoldinna greiðslna
Ef krafa eða mál þitt er komið í lögfræðiinnheimtu bendum við á að hafa samband við okkur í síma 444 6170 eða með því að senda tölvupóst á netfangið loginnheimta@arionbanki.is.

Ef þú ert í miklum vanda er hægt að leita til umboðsmanns skuldara, en hlutverk hans er að hjálpa einstaklingum að koma greiðslubyrði sinni og skuldastöðu í ásættanlegt horf. Við hvetjum þig þó til að byrja á því að hafa samband við okkur, þar sem oft er hægt að finna lausn áður en til frekari úrræða kemur.