Ertu að endurhugsa íbúðalánið?


Mögulega hefur greiðslugeta þín aukist sem þýðir að þú gætir stytt lánstímann og greitt lánið hraðar upp.
Greiðslugetan gæti líka hafa minnkað og þá gæti verið sniðugt að lengja í lánstímanum og þar með lækka greiðslubyrðina.
Þú getur sótt um endurfjármögnun íbúðaláns fyrir allt að 80% af fasteignamati ef þú ert að endurfjármagna sömu fjárhæð og hvílir nú þegar á eigninni.
Ef þú ert með íbúðalán hjá Arion stendur þér líka til boða að endurfjármagna það krónu á móti krónu, alveg upp í 90% af fasteignamati.
Heildarupphæð má ekki vera hærri en brunabótamat og lóðamat íbúðarhúsnæðis samanlagt. Í ákveðnum póstnúmerum miðast þessi upphæð við brunabótamat og tvöfalt lóðamat.
Þú getur sótt um endurfjármögnun fyrir allt að 80% af fasteignamati. Ef íbúðalánið er frá Arion getur þú sótt um endurfjármögnun upp á 90% af fasteignamati.
Greiðslumeta má saman hjón og einstaklinga í staðfestri sambúð. Samkvæmt reglum frá Seðlabanka Íslands má greiðslubyrðarhlutfall, sem er hlutfall af tekjum og fasteignalánum, ekki vera hærra en 35%.
Ef lánsfjárhæð er hærri en 70 milljónir króna áskilur bankinn sér rétt til að gera auknar kröfur vegna lánveitingar.
Þú getur sótt um endurfjármögnun og undirritað stoðskjöl með rafrænum hætti. Athugaðu að skrifa þarf undir sjálf lánaskjölin í útibúi.
Athugaðu að þegar þú endurfjármagnar lán þarftu mögulega að greiða uppgreiðslugjald af eldra láninu.

Það er erfitt að segja til um hvort það henti þér að leigja eða kaupa og þar ráða helst ferðinni þín fjárhagsstaða og þín fjárhagslegu markmið. Þú skalt reikna hvoru tveggja til enda áður en þú tekur ákvörðun. Ef stefnan er tekin á fasteignakaup eru nokkur mikilvæg atriði sem gott er að kynna sér og hafa á hreinu áður en af stað er farið.

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.
Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára. Því er mikilvægt að skilja hvernig val á lánstíma og tegund lána getur breytt bæði greiðslubyrði og heildarkostnaði. Hvort lánið er verðtryggð eða óverðtryggð, og hversu langur lánstíminn er, getur haft veruleg áhrif á greiðslubyrði og eignarmyndun.