Okkar sjálfbærni
Arion samstæðan gegnir mikilvægu samfélagshlutverki og við erum meðvituð um að starfsemi okkar hefur víðtæk áhrif.

Arion samstæðan gegnir mikilvægu samfélagshlutverki og við erum meðvituð um að starfsemi okkar hefur víðtæk áhrif.

Við leggjum áherslu á að sjálfbærni sé hluti af daglegri starfsemi okkar, ákvarðanatöku og ferlum. Við viljum vera öðrum fyrirmynd um ábyrga og arðsama viðskiptahætti sem taka mið af umhverfi, efnahagslífi og því samfélagi sem við störfum í.
Það felur í sér að við leggjum áherslu á að starfsemi Arion og sú fjármálaþjónusta sem við veitum stuðli að sjálfbærri verðmætasköpun og leiði ekki til óásættanlegra áhrifa á fólk eða umhverfi.

Árlega gefum við út árs- og sjálfbærniskýrslu sem m.a. inniheldur umfjöllun um umhverfis- og loftslagsmál, sjálfbær fjármál, mannauðsmál, tengsl við hagaðila og samfélagið.

Arion banki hefur birt Áhrifa- og úthlutunarskýrslu fyrir græna fjármögnun bankans árið 2025. Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir úthlutun fjármagns til verkefna sem uppfylla kröfur um græna fjármögnun samkvæmt sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og dregin eru fram jákvæð umhverfis- og loftslagsáhrif þeirra.
Arion banki hefur gefið út árs- og sjálfbærniskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2025. Skýrslurnar eru aðgengilegar á vef bankans. Ársreikningur bankans fyrir árið 2025 var birtur 11. febrúar.
Arion banki hefur hlotið framúrskarandi einkunn í UFS áhættumati Reitunar og er í flokki A3. Er þetta sjötta árið í röð sem Reitun metur bankann í flokki framúrskarandi fyrirtækja á þessu sviði.
Þann 28. nóvember síðastliðinn hélt Arion banki vel sóttan morgunfund um sjálfbærni í höfuðstöðvum sínum, Borgartúni 19, undir yfirskriftinni „Vaxandi kröfur & aukinn kraftur“.
Arion banki hefur birt skýrslu með uppfærðum loftslagsmarkmiðum til ársins 2030 og greinargóðri lýsingu á því hvernig hann hyggst stuðla að kolefnishlutleysi. Um er að ræða markmið fyrir eigin starfsemi, íbúðalán og fyrirtækjalán í þeim atvinnugreinum sem hafa mesta losun í útlánasafni bankans, auk tilgreindra lánaflokka samkvæmt aðferðafræði Science Based Targets Initiative (SBTi).
Fulltrúar Arion tóku við viðurkenningu á hátíðlegri athöfn á Nauthóli síðasta föstudag, þann 22. ágúst, þegar átján íslensk fyrirtæki hlutu nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum. Viðurkenningarnar eru veittar af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland.
Fyrirtækin eru af fjölbreyttum toga og sinna meðal annars fjármála- og tryggingastarfsemi, fjarskipti, leigustarfsemi, eignaumsýslu og ferðaþjónustu. Hér má sjá lista yfir öll fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu.
„Einvígið á Nesinu“ fór fram í tuttugasta og níunda sinn þann fjórða ágúst síðastliðinn í Nesklúbbnum á Seltjarnarnesi. Um er að ræða árlegt golfmót þar sem margir helstu kylfinga landsins leika í þágu góðs málefnis.
Arion banki hefur gefið út stutta og aðgengilega skýrslu með samantekt á þeim árangri sem náðist á fyrsta ári átaksins Konur fjárfestum.
Arion banki hefur birt Áhrifa- og úthlutunarskýrslu fyrir græna fjármögnun bankans árið 2024. Í skýrslunni er að finna yfirlit yfir úthlutun til verkefna sem uppfylla kröfur um græn verkefni samkvæmt sjálfbærri fjármálaumgjörð bankans og dregin eru fram jákvæð umhverfis- og loftslagsáhrif þeirra. Í skýrslunni eru áhugaverð dæmi um verkefni sem Arion banki hefur fjármagnað og sýna fram á þann metnað sem við vonumst til að ýta undir með útgáfu sjálfbærra fjármálagerninga.
Til að vinna í sprotafyrirtæki, hvað þá stofna eitt slíkt, þarf að búa yfir eldmóði og hafa ástríðu fyrir verkefnum sínum. Ekki spillir heldur fyrir að kunna vel við samstarfsfélaga sína, vera tilbúinn að leggja mikið á sig og vinna langa vinnudaga. Allt getur þetta reynt á þolrifin - en þegar vel gengur er líka fátt meira gefandi.
Arion banki gerðist aðili að UNEP FI (United Nations Environment Programme Finance Initiative) árið 2019. Sama ár varð bankinn einn af stofnaðilum meginreglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrga bankastarfsemi (e. Principles for Responsible Bankin – PRB).
UNEP FI er samstarfsvettvangur umhverfisstofnunar Sameinuðu þjóðanna og fyrirtækja í fjármálageiranum þar sem fjallað er um áskoranir í samfélags- og umhverfismálum.
Markmið PRB er að tengja bankastarfsemi við alþjóðlegar skuldbindingar og markmið á borð við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna og Parísarsamkomulagið.
Arion banki og Stefnir eru aðilar að meginreglum Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (e. UN Principles for Responsible Investment – PRI). Meginreglunum er ætlað að hjálpa fjárfestum að skilja áhrif umhverfis- og félagsþátta auk stjórnarhátta á fjárfestingar og styðja við þá að taka ófjárhagslega þætti inn í fjárfestingaákvarðanir sínar.
UN Global Compact er sáttmáli Sameinuðu þjóðanna og atvinnulífsins um ábyrga starfshætti með sjálfbærni að leiðarljósi. Um er að ræða ákall til fyrirtækja til aðalaga starfsemi sína að tíu meginmarkmiðum sáttmálans. Markmiðunum tíu er skipt í fjóra flokka: mannréttindi, vinnumarkaðinn, umhverfismál og varnir gegn spillingu. Arion banki hefur verið aðili að UN Global Compact frá árinu 2016.
Frá árinu 2014 hefur Arion banki verið aðili að jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact. Sáttmálinn er alþjóðleg yfirlýsing og samkomulag á vegum Sameinuðu þjóðanna sem fyrirtæki og stofnanir geta haft að leiðarljósi við innleiðingu ábyrgra stafshátta. Viðmiðin snúa fyrst og fremst að kynjajafnrétti.
Í árslok 2023 skuldbatt Arion banki sig til að fá markmið sín í loftlagsmálum samþykkt af Science Based Targets initiative (SBTi). Samþykki SBTi á loftlagsmarkmiðum staðfestir að þau séu byggð á vísindalegum grunni og í samræmi við skuldbindingar Parísarsamkomulagsins. Yfir 10.000 fyrirtæki hafa fengið markmið sín samþykkt hjá SBTi. Stefnt er að því að loftlagsmarkmið Arion banka fáist samþykkt samkvæmt nýjum staðli fyrir fjármálafyrirtæki á árinu 2027.
Árið 2021 gerðist Arion banki aðili að Partnership for Carbon Accounting Financials (PCAF). Um er að ræða alþjóðlegan samstarfsvettvang fjármálafyrirtækja sem hefur það meginmarkmið að samræma mat á umfangi losunar gróðurhúsalofttegunda (GHL) sem fjármálafyrirtæki fjármagna í gegnum lánveitingar og fjárfestingar.
Arion banki og Stefnir birta reglulega útreikning á fjármögnuðum útblæstri samkvæmt aðferðafræði PCAF og hafa nýtt niðurstöður til að setja markmið um að draga úr losun.
Nánar um fjármagnaða losun Arion banka
Arion banki hefur um árabil verið aðili að Festu, miðstöð um sjálfbærni. Hlutverk Festu er að auka þekkingu á samfélagsábyrgð og sjálfbærni fyrirtækja, stofnana og hvers kyns skipulagsheilda. Bankinn styður sérstaklega við störf Festu með viðbótarframlagi og er þar með í hópi fyrirtækja sem flokkast sem kjölfestur. Þá á bankinn fulltrúa í stjórn samtakanna og í ungmennaráði.
Arion banki hefur verið virkur þátttakandi í mótun og þróun ábyrgra fjárfestinga á Íslandi og var meðal stofnaðila IcelandsSIF árið 2017 ásamt Verði og Stefni. [HF1] [HS2] IcelandSIF er félag íslenskra fjárfesta og er tilgangur samtakanna að efla þekkingu og auka umræðum um aðferðafræði sjálfbærra og ábyrgra fjárfestinga. Arion banki og Stefnir eiga fulltrúa í stjórn samtakanna.