Virk þátt­taka í sam­félag­inu

Við hjá Arion tökum virkan þátt í okkar samfélagi, m.a. með styrkveitingum sem tengjast okkar kjarnastarfsemi og styðja við Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Fótboltavöllur

Lát­um gott af okk­ur leiða

Við styðjum fjölbreytt góðgerðamál og samfélagsverkefni um allt land, bæði í gegnum miðlægan stuðning og framlag frá útibúum í nærumhverfi sínu.

Við leggjum ríka áherslu á samstarf sem stuðlar að jafnrétti, velferð og jákvæðri samfélagsþróun, meðal annars með því að styðja við rannsóknir og þekkingaruppbyggingu. Með þessum hætti viljum við standa með samfélaginu, efla traust og leggja okkar af mörkum til betri og sjálfbærari framtíðar.

Árlega veitum við styrki til fjölda verkefna og félagasamtaka sem hafa það að markmiði að bæta lífsgæði, efla samfélög og styðja við einstaklinga í ólíkum aðstæðum.

Yfirlit yfir helstu styrki og samfélagsverkefni er tekið saman og birt í ársskýrslu bankans á hverju ári.

Styrktarstefnan okkar

Við látum gott af okkur leiða og tökum virkan þátt í okkar samfélagi, m.a. með styrkveitingum sem tengjast okkar kjarnastarfsemi og styðja Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, með sérstaka áherslu á þau heimsmarkmið sem við höfum í forgrunn:

  • Jafnrétti kynjanna

  • Sjálfbær orka

  • Góð atvinna og hagvöxtur

  • Nýsköpun og uppbygging

  • Ábyrg neysla og framleiðsla

  • Aðgerðir í loftslagsmálum

Við styrkjum ekki verkefni á grundvelli persónulegra hagsmuna eða viðskiptatengsla, styrkjum ekki rekstur fyrirtækja og leitumst við að hafa ferlið gagnsætt og einfalt.

Styrktarstefnan okkar
Sjálfbærni
Viðburðir og samstarf

Við­burð­ir og sam­starf

Við viljum vera virkur þátttakandi í samfélaginu. Okkur finnst gaman að fá gesti í hús og hýsum fjölda funda, ráðstefna og viðburða. Við tökum þátt í ýmsum viðburðum og erum dyggir styrktaraðilar eins og dæmin bera vitni um.

HSÍ markmenn

Íþrótta­félög um allt land

Arion banki er einn af styrktaraðilum HSÍ en bankinn hefur um árabil stutt íslenskan handknattleik. Þá er bankinn einn af styrkir aðalbakhjörlum Íþróttasambands fatlaðra og hefur verið um áratugaskeið. Einnig eru veittir íþróttafélaga um allt land.

Innovation week

Fjöl­breytt verk­efni

Við styðjum við fjölbreytt góðgerðafélög og þekkingaruppbyggingu á sviði jafnréttis og atvinnulífs. Stuðningurinn nær bæði til verkefna á landsvísu og í nærumhverfi útibúa bankans.