Fjármál fjölskyldunnar á einum stað
Hvort sem þú ert að hugsa um húsnæðismálin eða fjölskyldan að stækka þá erum við til staðar til að aðstoða ykkur með framtíðina.

Hvort sem þú ert að hugsa um húsnæðismálin eða fjölskyldan að stækka þá erum við til staðar til að aðstoða ykkur með framtíðina.

Að kaupa húsnæði er eitt stærsta fjárhagslega skrefið í lífinu og oft fylgja því stórar spurningar. Hjá okkur færðu einfaldar og skýrar lausnir sem hjálpa þér í átt að drauma heimilinu.
Við vitum að það er að mörgu að huga og því leiðum þig í gegnum ferlið, skref fyrir skref frá hugmynd til fyrstu afborgunar. Margar leiðir eru í boði og því mikilvægt að kynna sér þa valkosti sem bjóðast og hvernig þeir henta þínum markmiðum.
Við leggjum okkur fram við að uppfylla þarfir fólks þegar kemur að fjármögnun húsnæðis. Því bjóðum við ýmsar útfærslur af lánum með tilliti til greiðslumáta, lánstíma og mismunandi þarfa.
Það er gott að vita hver greiðslugetan er áður en lán er tekið. Það er einfalt að reikna út greiðslugetuna, en ferlið er rafrænt og tekur bara örfáar mínútur.
Við bjóðum þeim sem eru að byggja sér húsnæði heildstæða fjármögnun, allt frá lóðarkaupum og þar til eign er orðin fullbyggð.
Í samstarfi við Leiguskjól, sem er dótturfélag bankans, gefur Arion banki út húsaleiguábyrgðir. Hjá Leiguskjóli greiðir viðskiptavinur mánaðargreiðslur fyrir ábyrgðina ásamt handveði í byrjun. Leiguskjól getur því aukið ráðstöfunarfé leigjenda umtalsvert með því að veita ábyrgð í stað þess að binda peningana inni á bók að öllu leyti.
Hentar þeim sem vilja nýta sér hagstæð lífeyrissjóðslán en þurfa viðbótarfjármagn til að kaupa nýtt eða endurfjármagna núverandi húsnæði.
Íbúðalán eru á mismunandi og vextirnir sem íbúðalánið ber hefur mikil áhrif á greiðslubyrði lánsins.

Í stuttu máli virka Arion fríðindi þannig að því meira sem þú nýtir þér þjónustu okkar, því meiri fríðinda nýtur þú.
Það tekur 30 sekúndur að skrá sig til leiks, þú einfaldlega opnar Arion appið og fylgir örfáum einföldum skrefum.
Í appinu ertu síðan með góða yfirsýn yfir fríðindi þín og þær þjónustur sem þú ert með hjá okkur ásamt því að sjá hvaða auknu fríðindi standa þér til boða – en þar er af nógu að taka!
Við bjóðum skjóta og góða þjónustu og hagstæð kjör þegar þú kaupir nýjan eða notaðan bíl.
Viltu greiða lægra árgjald, vera með bestu ferðatryggingarnar, eða jafnvel safna fullt af vildarpunktum?
Núlán getur verið góður kostur ef upp koma óvæntar aðstæður og þú þarft að brúa bilið. Það getur einnig verið hentugt ef þú ert með margar raðgreiðslur, eða lán sem þú vilt sameina.
Engar fastar afborganir eru af heimildinni heldur greiðir þú eingöngu vexti af þeirri upphæð sem þú notar hverju sinni. Þannig getur þú hagað endurgreiðslunni eftir þínum þörfum.
Gefur þér kost á að dreifa kreditkortareikningnum til allt að 18 mánaða. Einnig er hægt að dreifa einstakri færslu á kreditkortinu, t.d. ef keyptur hefur verið dýr hlutur.
Áttu eftir að tryggja heimilið? Hjá okkur nýtur þú góðs af því að vera með fjármálin og tryggingarnar á sama stað. Þar af leiðandi færðu betri kjör ef þú ert bæði hjá Arion og Verði. Við gefum þér tilboð í tryggingarnar á örfáum sekúndum.

Við leggjum áherslu á að auðvelda fjölskyldum að halda utan um fjármálin sín með einföldum og þægilegum hætti.
Í Arion appinu ertu ekki einungis með góða yfirsýn yfir fjármálin þín heldur ertu líka með góða yfirsýn yfir fjármál barnanna. Þar að auki geta makar veitt umboð á reikninga sín á milli og þar með gert fjármál heimilisins enn einfaldari og þægilegri.

Það kostar sitt að kaupa og reka bíl – og því margborgar sig að ráðast í svolitla heimildarvinnu áður en gengið er frá kaupum og sest undir stýri á nýja farartækinu. Hér koma nokkur hagnýt ráð sem vonandi nýtast í leitinni að draumabílnum.

Víðast hvar má núorðið greiða með kortum og gjaldeyrir því nánast orðinn óþarfi á ferðalögum. Stundum er þó skynsamlegt að vera með gjaldeyri á sér til öryggis. Skemmst er að minnast óvænts rafmagnsleysis á Spáni og í Portúgal sem varð til þess að ekki var hægt að greiða með kortum. Einnig geta komið upp aðstæður þar sem kortið bara virkar ekki eða söluaðilar vöru eða þjónustu kjósa frekar að fá greitt í peningum, til að mynda leigubílstjórar eða veitingastaðir. Margir kjósa einnig að gefa þjórfé með peningum.

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára. Því er mikilvægt að skilja hvernig val á lánstíma og tegund lána getur breytt bæði greiðslubyrði og heildarkostnaði. Hvort lánið er verðtryggð eða óverðtryggð, og hversu langur lánstíminn er, getur haft veruleg áhrif á greiðslubyrði og eignarmyndun.

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.
Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.