Ertu að fara að byggja?
Við bjóðum heildstæð lán til að fjármagna byggingarframkvæmdir.

Við bjóðum heildstæð lán til að fjármagna byggingarframkvæmdir.

Við hjálpum til við að fjármagna allt ferlið, frá lóðarkaupum og þar til eign er fullbyggð. Í fyrstu er um óverðtryggt skammtímalán að ræða en við byggingarstig 2 (fokheld bygging) er hægt að sækja um íbúðalán. Veð er tekið í eigninni í formi tryggingarbréfs.
Þegar fasteign er fullbyggð er hægt að fá lánað fyrir allt að 80% af byggingarkostnaði eða markaðsverðmæti, þ.e. því sem lægra reynist. Eingöngu er lánað á fyrsta veðrétt.
Ef lánveiting fer umfram 70 milljónir kr. eru gerðar auknar kröfur.
Gott er að byrja á því að meta stöðuna og fara í gegnum greiðslumat. Ef þú vilt kynna þér málið betur getur þú sent okkur línu á netfangið ibudalan@arionbanki.is eða bókað tíma hjá ráðgjafa.
Kostnaðar- og verkáætlun þarf að liggja fyrir
Eigið fé í upphafi þarf að vera 30% af áætluðum byggingarkostnaði
Hámarksveðhlutfall framkvæmda er allt að 70% af verkáföngum á hverjum tíma
Brunatrygging fasteigna í smíðum/smíðatrygging þarf að vera til staðar
Lánað er í formi yfirdráttar til að hámarki 12 mánaða í senn, sem er svo framlengt eftir þörfum
Um er að ræða óverðtryggða, breytilega brúarlánavexti á sérstökum reikningi
Lánið má greiða upp hvenær sem er án kostnaðar

Trygging sem veitir þér víðtæka vernd ef þú ert að byggja hús og hefur ráðið byggingarstjóra eða ábyrgan verktaka til að annast framkvæmdirnar.

Að velja rétta íbúðalánið er stór ákvörðun sem hefur áhrif á fjárhag heimilisins til margra ára. Því er mikilvægt að skilja hvernig val á lánstíma og tegund lána getur breytt bæði greiðslubyrði og heildarkostnaði. Hvort lánið er verðtryggð eða óverðtryggð, og hversu langur lánstíminn er, getur haft veruleg áhrif á greiðslubyrði og eignarmyndun.

Þegar greiðslugetan hefur verið könnuð og útborgun tryggð þá er komið að því að finna draumaeignina. Það ferli getur tekið mislangan tíma en mikilvægt er að vanda valið og finna þá eign sem er með flesta þá eiginleika sem leitað er að.
Flestir eru með mjög skýrar hugmyndir um hvernig íbúð er leitað að og hvaða skilyrði hún þarf að uppfylla en það er gott að hafa það í huga að það þarf ekki að vera að íbúð finnist sem uppfyllir allar óskir. Við kaup á fyrstu fasteign þarf oft að forgangsraða eiginleikum og velja þá eign sem tikkar í flest boxin ef ekki finnst eign á réttu verði sem uppfyllir allt saman.

Þegar nýtt lán er tekið getur það skipt sköpum á hversu löngum tíma greiða skal lánið til baka. Það er misjafnt hver hámarkstími lána getur verið en lengst er lánað fyrir fasteignakaupum til 40 ára.

Það er erfitt að segja til um hvort það henti þér að leigja eða kaupa og þar ráða helst ferðinni þín fjárhagsstaða og þín fjárhagslegu markmið. Þú skalt reikna hvoru tveggja til enda áður en þú tekur ákvörðun. Ef stefnan er tekin á fasteignakaup eru nokkur mikilvæg atriði sem gott er að kynna sér og hafa á hreinu áður en af stað er farið.